Þjóðarmorð á Róhingjum staðfest í sögulegum dómi

Þetta er í fyrsta sinn sem dómstóllinn úrskurðar að ríki hafi framið slíkan glæp. AFP

Alþjóðadómstóllinn úrskurðaði í dag að Mjanmar hefði framið þjóðarmorð á Róhingjum, minnihlutahópi í landinu.

Þetta er í fyrsta sinn sem dómstóllinn úrskurðar að ríki hafi framið slíkan glæp.

Málið á sér nokkurn aðdraganda en árið 2019 höfðaði Gambía mál fyrir dómstólnum og hélt því fram að Mjanmar hefði brotið gegn samningi Sameinuðu þjóðanna frá 1948 um varnir gegn þjóðarmorðum í meðferð sinni á Róhingjum.

Gert að greiða skaðabætur

Með dóminum er Mjanmar gert að greiða skaðabætur og greiða fyrir endurkomu flóttafólks úr röðum Róhingja aftur til landsins ásamt því sem þeim er gert að hefja rannsókn á þeim einstaklingum sem grunaðir eru um að hafa framið þjóðarmorðin. 

Yuji Iwasawa, forseti Alþjóðadómstólsins.

Yuji Iwasawa, forseti Alþjóðadómstólsins. AFP

„Mjanmar hefur framið þjóðarmorð á hópi Róhingja í norðurhluta Rakhine-fylkis og þannig brotið gegn skuldbindingum sínum samkvæmt samningnum um ráðstafanir gegn og refsingar fyrir hópmorð,“ sagði Yuji Iwasawa, forseti Alþjóðadómstólsins.

„Mjanmar verður að leyfa og greiða fyrir öruggri, sjálfviljugri og mannsæmandi endurkomu Róhingja til heimkynna sinna og sameiningu fjölskyldna þeirra sem hröktust á brott,“ sagði Iwasawa jafnframt.

Þakklæti efst í huga

Leiðtogi flóttafólks úr röðum Róhingja í Bangladess lýsti þakklæti sínu eftir að dómurinn féll við fréttamann AFP.

„Við færum Bangladess, Gambíu og Samtökum um íslamska samvinnu okkar bestu þakkir, en þau hafa staðið með okkur öll þessi ár,“ segir Sayed Ullah í flóttamannabúðunum í Cox's Bazar og bætir við: „Við biðjum alla að standa með okkur þar til við snúum aftur heim.“

Róhingjar horfðu saman á dómsúrskurðinn í flóttamannabúðunum í Cox's Bazar.

Róhingjar horfðu saman á dómsúrskurðinn í flóttamannabúðunum í Cox's Bazar. AFP

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab