„Ég veit af hverju pabbi dó“
Sólveig ásamt Tinnu Kristínu dóttur sinni, en þær hafa sótt starf Arnarins hjá Akureyrarkirkju. Morgunblaðið/Margrét Þóra Pálsdóttir
Barnsfaðir Sólveigar Gærdbo Smáradóttur féll fyrir eigin hendi árið 2023 en þau voru í skilnaðarferli á þeim tíma. Börnin hennar þrjú hafa tekist á við missinn á ólíkan hátt en yngsta dóttirin, sem var átta ára þegar faðir hennar lést, hefur fundið mikilvægan stuðning í því að hitta önnur börn sem hafa misst náinn ástvin. Hún er mjög opin með sínar tilfinningar og hefur haft ríka þörf fyrir að ræða það sem gerðist.
Starf Arnarins, minningar- og styrktarsjóðs, hefur reynst fjölskyldunni ómetanlegt í að takast á við sorgina. Þar hefur dóttir hennar fundið öruggan vettvang til að tala um föður sinn, andlát hans og sorgina, sem getur tekið á sig ýmsar myndir. Í gegnum starfið hefur Sólveig einnig lært að skilja eigin tilfinningar og vinna úr þeim.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗