Bakvörður Liverpool í kast við lögin

Ryan Gravenberch og Jeremie Frimpong á góðri stundu.

Ryan Gravenberch og Jeremie Frimpong á góðri stundu. AFP/Branislav Racko

Hollenski knattspyrnumaðurinn Jeremie Frimpong þarf að greiða rúmlega 1.000 pund í sekt fyrir að neita að tilgreina hver var við stýrið á bifreið hans þegar hann keyrði yfir hámarkshraða í Manchester í sumar.

Það er enski miðillinn Sportsmail sem greinir frá þessu en Frimpong, sem er 25 ára gamall, fékk tvö bréf send heim til sín þar sem honum var gert að greina frá því hver hefði verið undir stýri á Lamborghini-bifreið hans þegar atvikið átti sér stað.

Frimpong svaraði hvorugu bréfanna en héraðsdómurinn í Manchester dæmdi Frimpong sekan og þarf hann því að greiða sektina innan 28 daga.

Bakvörðurinn gekk til liðs við Liverpool frá Bayer Leverkusen sumarið 2025 fyrir 35 milljónir punda en hann hefur ekki átt fast sæti í liðinu frá því hann kom og hefur meðal annars verið orðaður við félög í Sádi-Arabíu að undanförnu.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab