Danska þingið samþykkir öryggissamninginn
Danska þingið samþykkti í dag fullgildingu öryggissamnings sem Danmörk, Bandaríkin og Grænland undirrituðu í september. Samningnum er ætlað að draga úr spennu vegna yfirlýsinga Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að hann vilji að Bandaríkin innlimi Grænland.
Allir 109 þingmenn sem voru viðstaddir greiddu atkvæði með samningnum að lokinni annarri umræðu. Engar umræður fóru fram fyrir atkvæðagreiðsluna. Alls eiga 179 þingmenn sæti á danska þinginu.
Grænlenska þingið samþykkti fullgildingu samningsins í byrjun nóvember. Samningurinn var undirritaður í New York 22. september og er viðbót við samninginn frá 1951 um viðveru Bandaríkjahers á Grænlandi. Hann tekur gildi þegar Danmörk hefur tilkynnt Bandaríkjunum formlega um fullgildinguna.
Allir 109 þingmenn sem voru viðstaddir greiddu atkvæði með samningnum að lokinni annarri umræðu. Engar umræður fóru fram fyrir atkvæðagreiðsluna. Alls eiga 179 þingmenn sæti á danska þinginu. AFP
Segir samninginn virða sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sagði á samfélagsmiðlum að þetta væri „stór dagur“. Samningurinn væri góður fyrir Grænland, danska konungsríkið og Bandaríkin, sem og Atlantshafsbandalagið og Evrópu.
Hún sagði samninginn virða fullveldi og landhelgi danska konungsríkisins og sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga.
Heimilar byggingu tveggja herstöðva
Samningurinn heimilar Bandaríkjunum að reisa tvær herstöðvar á Grænlandi. Þá útilokar hann aðkomu ríkja sem hvorki eiga aðild að Evrópusambandinu né Atlantshafsbandalaginu að tilteknum lykilgreinum á Grænlandi. Því er ætlað að koma í veg fyrir að Kína eða Rússland nái þar auknum áhrifum, einkum með fjárfestingum.
Grænland nýtur sjálfstjórnar innan danska konungsríkisins. Samningurinn á að halda gildi sínu þótt Grænland öðlist fullt sjálfstæði.
Frá því að Trump tók aftur við embætti í janúar 2025 hefur hann ítrekað haldið því fram að Bandaríkin þurfi að ráða yfir Grænlandi af hernaðarlegum ástæðum. Yfirlýsingarnar hafa vakið ugg í Danmörku, sem er bandalagsríki Bandaríkjanna innan Atlantshafsbandalagsins, og meðal annarra samstarfsríkja.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
