Ósáttur við ummæli leikstjóra Home Alone 36 árum síðar: „Þetta gerðist aldrei“
Bandaríski leikarinn Daniel Roebuck hefur brugðist við ummælum Chris Columbus, leikstjóra einnar vinsælustu jólamyndar allra tíma, Home Alone, um aðdraganda þess að hann var rekinn úr hlutverki annars innbrotsþjófsins í myndinni árið 1990.
Flestir kannast við þá Joe Pesci og Daniel Stern í hlutverkum Harry og Marv, ólánssömu innbrotsþjófanna sem áttu í höggi við Kevin McCallister. Færri vita ef til vill að Roebuck hafði verið ráðinn í hlutverk Marv eftir að samningar við Stern um laun hans höfðu strandað.
Í nýlegu viðtali í hlaðvarpinu Wildmen rifjaði Columbus upp atvikið og sagði frammistöðu leikarans í prufu með Pesci hafa verið afleita. Leikstjórinn nafngreindi leikarann ekki en ljóst þótti að hann ætti við Roebuck.
Roebuck, sem er 63 ára og hefur meðal annars leikið í The Fugitive, segir í samtali við Entertainment Weekly að frásögn leikstjórans standist ekki.
„Það var engin prufa með Joe Pesci. Þetta gerðist aldrei,“ segir hann.
Roebuck kveðst hafa varið einum eftirmiðdegi með Pesci en að aldrei hafi verið kveikt á myndavél. Þegar honum var sagt upp hafi Columbus sagt honum að ekki væri nægilega góð tenging á milli leikaranna.
Roebuck heldur því jafnframt fram að Pesci hafi orðað við hann óánægju sína eftir að honum var sagt upp.
„Ég vildi óska þess að þeir myndu reka mig úr þessu drasli,“ á Pesci að hafa sagt.
Talsmaður Pesci sagði í samtali við Entertainment Weekly að leikarinn bæri virðingu fyrir samstarfsfólki sínu og myndi aldrei taka þátt í slíkum sögusögnum.
Þrátt fyrir ummæli Columbus segist Roebuck ekki sjá eftir því að hafa misst af hlutverkinu. Hann telji að vinsældir Home Alone hefðu mögulega staðið í vegi fyrir öðrum tækifærum á leiklistarferli hans.
Hann ber jafnframt mikið lof á frammistöðu Pesci og Stern í myndinni og segist enn vera opinn fyrir því að vinna með Columbus, þótt ekkert hafi orðið af því á þeim 36 árum sem liðin eru frá frumsýningu myndarinnar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗