Wenger ekki sáttur við eigin tilraun - Mun ekki taka gildi

Tillaga Arsene Wenger um breytingar á rangstöðureglunni verður að öllum líkindum felld eftir misheppnaða tilraun í Kanada. The Times greinir frá þessu.

Samkvæmt tillögunni er sóknarmaður aðeins rangstæður ef allur líkami hans er kominn fram fyrir næstsíðasta mann. Markmiðið var að fjölga mörkum og gera leikinn skemmtilegri.

Reglan var prófuð í kanadísku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Rangstöðudómum fækkaði um 54 prósent en aðeins 13 mörk voru skoruð sem hefðu verið dæmd af samkvæmt núverandi reglum.

Varnarliðin brugðust við með því að færa varnarlínuna einum til þremur metrum aftar á völlinn og leikurinn varð því ekki sókndjarfari eins og vonast var til.

Alþjóðanefndin IFAB er því talin ætla að hafna breytingunni og er Wenger sjálfur sagður ósáttur með niðurstöðu tilraunarinnar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab