Falsað vegabréf gæti fengið jákvætt svar við uppflettingu

Hann leggur til að fleiri upplýsingar af vegabréfinu verði bornar saman við skrá Þjóðskrár. Hér má sjá sýnishorn af íslensku vegabréfi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fyrirhuguð uppfletting hjá Þjóðskrá gæti skilað jákvæðu svari þótt framvísað sé fölsuðu vegabréfi með númeri af gildu bréfi.

Þetta segir Eiríkur H. Sigurjónsson, lögreglufulltrúi og skilríkjasérfræðingur í flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum, í umsögn sem birt var á vef Alþingis í dag.

Hann leggur til að fleiri upplýsingar af vegabréfinu verði bornar saman við skrá Þjóðskrár.

Í frumvarpi dómsmálaráðherra er lagt til að Þjóðskrá haldi sérstaka skrá yfir vegabréfsnúmer og hvort vegabréfin séu í gildi. Almenningur gæti slegið inn númer á vegabréfi og fengið já eða nei um gildi þess. Í greinargerð frumvarpsins er útgáfa rafrænna skilríkja nefnd sem dæmi um hvar uppflettingin gæti nýst.

Vill að fleiri upplýsingar stemmi

Eiríkur telur að uppflettingin geti aukið öryggi við notkun vegabréfa. Hann bendir þó á að jákvætt svar staðfesti aðeins að gilt vegabréf sé skráð á númerið. Hann leggur því til að sá sem flettir upp þurfi líka að slá inn að minnsta kosti eitt annað atriði af bréfinu, svo sem fæðingardag handhafans eða hvenær bréfið rennur út. Að hans mati myndi það draga verulega úr líkum á að uppfletting vegna falsaðs vegabréfs skilaði jákvæðu svari. 

Hann leggur einnig til að IP-tölur notenda verði skráðar svo hægt sé að greina grunsamlegt mynstur í uppflettingum. Þá nefnir hann þann kost að senda notendum uppflettingartengil í tölvupósti. Það gæti að hans mati aukið öryggi en um leið gert þjónustuna óhægari í notkun. 

Að ábendingu Persónuverndar er í frumvarpinu lagt til að Þjóðskrá verði gert að grípa til ráðstafana gegn óheimilli eða kerfisbundinni öflun upplýsinga úr skránni. Í greinargerðinni eru sjálfvirkar fjöldauppflettingar nefndar sem dæmi.

Í greinargerð sama frumvarps kemur fram að rökstuddur grunur hafi vaknað um sölu íslenskra vegabréfa í tilvikum þar sem handhafar höfðu ítrekað glatað vegabréfum sínum. Í öðru ákvæði frumvarpsins er lagt til að nýtt vegabréf sem gefið er út í stað glataðs bréfs gildi að jafnaði til sama dags og hið fyrra.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab