Reynslusaga konu um óþolandi athæfi veitingastaða slær í gegn: „Ég sest niður, ég er svöng, ég er tilbúin til að eyða pening“

Margir veitingastaðir hérlendis og erlendis eru farnir að „spara“ veigamikinn þátt í þeirri upplifun sem felst í því að fara út að borða: að sleppa matseðlum alfarið og láta gesti staðarins skanna QR-kóða á borðinu eða af spjaldi sem stendur á borðinu til að sjá matseðilinn og panta.

Í myndbandi sem deilt hefur verið víða á samfélagsmiðlum, meðan annars á X og Reddit, segist kona hafa gengið út af veitingastað, ástæðan var einföld: enginn matseðill í boði, bara QR-kóði.

„Ég gekk út af veitingastað af því hann var ekki með matseðil. Getur einhver útskýrt fyrir mér hvenær veitingastaðir ákváðu að það væri of mikil fyrirhöfn að láta gesti hafa matseðil? Ég sest niður, ég er svöng, ég er tilbúin til að eyða pening. Þjóninn kemur: „Góða kvöldið frú, hér er QR-kóðinn þinn. Skannaðu hann til að sjá matseðilinn.““ 

Konan segist vera komin og sest niður til að borða ekki til að hakka sig inn í Pentagon, stjórnstöð bandaríska hersins og varnarmálaráðuneytisins.

„Hvað varð um helvítis pappírinn með kjúklingnum á?“ 

Konan segir þjóninn hafa sagt að ferlið væri auðvelt.

„Auðvelt? Fyrst þarf ég að opna símann minn, næst að aflæsa honum, opna myndavélina, skanna kóðann, bíða eftir að vefsíðan hlaðist upp, samþykkja kökur, afþakka fréttabréfið, og að svo virðist vera gefa veitingastaðnum leyfi til að staðfesta staðsetningu mína, tengiliði míína og heilbrigðissögu ömmu minnar.  Allt þetta til að komast að hvað sesarsalat kostar?“ 

Konan segir að auðvitað hlaðist svo vefsíðan ekki upp, þannig að þjónninn býður henni að tengjast þráðlausu neti veitingastaðarins. „Ohh frábært, núna erum við komin í netverkfræði, hvað er lykilorðið? Stórt R, lítið e, talan 7, undirstrik, myllumerki, stafurinn B og spurningarmerki. Habibi [arabíska yfir ástin mín eða minn kæri] erum við að panta hádegismat eða skjóta upp kjarnorkuflaug?“ 
 

I don't know who this woman is or where she is, but on this issue she speaks for me!

— Chi Onwurah 💙 (@ChiOnwurah) November 18, 2026

 Segir konan að loksins þegar hún nær að opna matseðilinn er skjalið í pdf. Og ég er bara þarna og líður eins og ég sé að lesa ríkisstjórnarskjal til að panta pasta. Ég þarf að stækka skjalið, minnka skjalið, færa skjalið til vinstri, til hægri og hvað ef batteríið á símanum mínum er búið? Mun ég svelta?“ 

Spyr konan hvort að hleðslutæki á símann komi með í brauðkörfunni.„ Góða kvöldið frú, viltu vatn, kolsýrt vatn eða hleðslubanka?“ 

Segir konan að veitingastaðir skuli ekki halda því kjaftæði fram að þetta sé gert af umhverfissjónarmiðum. „Þú ert með veitingastað með 47 loftkælum, kristalsljósakrónu á stærð við þyrlu og steik sem er flogin inn frá Japan á fyrsta farrými. En helvítis matseðillinn er það sem er að eyðileggja jörðina?“ 

Konan segir að það versta við þetta sé það að hún geti ekki notið þess að skoða matseðilinn. 

„Ég vil halda á honum, fletta síðunum, horfa á myndirnar, skipta um skoðun…svona 17 sinnum. Ég vil benda á eitthvað og spyrja: „Hvað er þetta? Ekki klípa skjáinn eins og ég sé að fara að framkvæma skurðaðgerð á maur. Habibi þegar ég verð búin með matinn minn þá verð ég með gráðu í tölvunarfræði og prófíl á LinkedIn sem sérfræðingur í netöryggi. Ég vil það ekki. Ég vil borða.“ 

Konan segir að þegar hún spyr þjóninn hvort hann eigi ekki venjulegan matseðill svari hann neitandi, bara QR-kóða. 

„Þannig að ég fór af því ég neita að vera haldið í gíslingu af helvítis strikamerki. Ég er viðskiptavinur ekki sérfræðingur í upplýsingatækni. Og ef veitingastaðurinn þinn er svona tæknilega þróaður að þú getur ekki látið mig hafa matseðil af hverju þarf ég samt að kalla á þjóninn til að panta? Hvar er vélmennið? Af hverju flýgur kjúklingurinn ekki upp í mig?

Þið veitingastaðir fjarlægðuð eina hlutinn af tæknibúnaðinum sem hefur virkað fullkomlega í 200 ár, pappír. Og skipt honum út fyrir hvað? Helvítis fjársjóðsleit?“ 

Hvetur konan veitingastaði til að koma aftur með matseðlann. „Af því að næst þegar einhver býður mér að skanna QR-kóða mun ég segja þeim að skanna á mér rassinn. Kannski það svari þeim hvað ég vil borða!“ 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab