Þekkir Pochettino vel og er orðaður við United
Antonee Robinson, vinstri bakvörður Fulham, er orðaður við Manchester United eftir komu Mauricio Pochettino.
Robinson er 29 ára bandarískur landsliðsmaður sem hefur verið lykilmaður hjá Fulham. Pochettino þekkir hann vel eftir að hafa þjálfað hann hjá bandaríska landsliðinu.
Vinstri bakvarðastaðan hefur verið til vandræða hjá United og vill félagið styrkja hana í janúar.
United gæti lagt fram tilboð í janúar. Talið er að Fulham vilji um 35 milljónir punda fyrir Robinson en United mun bjóða eitthvað minna en það.
Samningur Robinson við Fulham rennur út eftir næstu leiktíð og er talið að fleiri stórlið horfi einnig til hans.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗