Endurkoma í kortunum hjá Wilfried Zaha?

Wilfried Zaha.

Wilfried Zaha. AFP/Adrian Dennis

Fílbeinsstrendingurinn Wilfried Zaha gæti gengið til liðs við enska knattspyrnufélagið Crystal Palace á nýjan leik.

Það er Talksport sem greinir frá þessu en Zaha, sem er 34 ára gamall, er án félags eftir að samningur hans við Galatasaray rann út í Tyrklandi í sumar.

Talksport greinir frá því að Zaha hafi undanfarnar vikur æft með uppeldisfélagi sínu Crystal Palace þar sem hann lék frá á árunum 2010 til 2013 og svo aftur árin 2015 til 2023.

Alls á hann að baki 458 leiki fyrir félagið þar sem hann skoraði 90 mörk og lagði upp önnur 54 til viðbótar en Crystal Palace hefur farið skelfilega af stað á tímabilinu og er með sjö stig í 20. og neðsta sæti úrvalsdeildarinnar.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab