„Alveg ljóst hvað það er sem við erum að gera vitlaust“
Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, á milli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra og Björns Brynjúlfs Björnssonar, framkvæmdastjóra ráðsins, á peningamálafundi Viðskiptaráðs í morgun. mbl.is/Eythor Arnason
Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs Íslands, telur að tímabært verði að huga að lækkun stýrivaxta í febrúar. Til lengri tíma telur hann að breyta þurfi fyrirkomulagi kjarasamninga hér á landi. Ekki gangi til lengdar að laun hækki hraðar en framleiðni.
Þetta segir Andri Þór í samtali við mbl.is að loknum peningamálafundi Viðskiptaráðs á Parliament Hotel í morgun. Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%. Næsta vaxtaákvörðun er 3. febrúar.
Spurður hvort hann telji ákvörðunina rétta segir Andri Þór að það sé nefndarinnar að meta. „Þetta er bara ákvörðun peningastefnunefndar miðað við þau gögn sem liggja fyrir.“
Hann segir hagvísa benda til þess að vextir taki að lækka á næsta ári. Aðhaldið í hagkerfinu sé orðið mikið og kortaneysla á mikilli niðurleið. Af umræðum á fundinum hafi hann fengið á tilfinninguna að vaxtalækkun „liggi í loftinu“.
Laun geti ekki hækkað hraðar en framleiðni
Spurður hvað þurfi að breytast til lengri tíma segir Andri Þór „alveg ljóst hvað það er sem við erum að gera vitlaust“. Hann segir vandann liggja í fyrirkomulagi kjarasamninga og svo hafi verið um áratugaskeið.
„Við getum ekki hækkað laun hérna umfram framleiðniaukningu í samfélaginu.“
Hann segir aðila vinnumarkaðarins þurfa að ná saman um breytingar. Unnið hafi verið að því um árabil en enn vanti upp á að samkomulag náist.
Peningamálafundur Viðskiptaráðs fór fram á Parliament Hotel í morgun, daginn eftir að Seðlabankinn hélt stýrivöxtum óbreyttum í 8%. mbl.is/Eythor Arnason
Vill niðurskurð frekar en skattahækkanir
Andri Þór segir Viðskiptaráð hafa hvatt stjórnvöld til að draga úr útgjöldum ríkisins fremur en að hækka skatta á heimili og fyrirtæki.
Ríkisstjórnin hefur boðað hallalaus fjárlög á næsta ári en í nýrri spá Seðlabankans er gert ráð fyrir um 17 milljarða króna halla á ríkissjóði.
Andri Þór segir Daða Má Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hafa boðað á fundinum að ríkisstjórnin muni bregðast við spánni þegar fjárlagafrumvarpið kemur til annarrar umræðu á Alþingi. Andri Þór kveðst bíða þess að sjá hvaða leið ríkisstjórnin velji.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
