Veltir fyrir sér hvort hún sé demíkynhneigð

Khloé Kardashian velti því fyrir sér í hlaðvarpi sínu hvort hún væri demíkynhneigð. Skjáskot/Instagram

„Ég held að ég hafi aldrei átt skyndikynni. Ég myndi muna eftir því. Er ég þá demí? Vá,“ sagði raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian þegar hún ræddi ástarlífið við vin sinn til margra ára, Simon Huck, í hlaðvarpi sínu, Khloé in Wonder Land.

Huck hafði þá velt því upp hvort Kardashian væri demíkynhneigð og útskýrt að þeir sem væru demíkynhneigðir löðuðust fyrst kynferðislega að annarri manneskju eftir að tilfinningatengsl hefðu myndast.

Kardashian og Tristan Thompson slitu samvistum árið 2021. Þau eiga saman tvö börn, True, sem er átta ára, og Tatum, fjögurra ára. Kardashian sagðist sátt við lífið eins og það væri og óttast að nýtt samband færi á sama veg og fyrri sambönd hennar. Þó saknaði hún stundum nándarinnar.

„Stundum langar mig bara að láta kyssa mig,“ sagði hún. „Stundum sakna ég þess bara að fá gott faðmlag frá einhverjum sem mig langar að faðma.“

Ræddu opin sambönd

Þau Huck ræddu einnig opin sambönd. Kardashian sagðist óviss um hvort slíkt samband hentaði henni en kunni að meta að fólk kæmi sér saman um reglurnar. Hún gæfi lítið fyrir loforð um tryggð þegar menn héldu svo fram hjá.

„Margar konur myndu sætta sig við slíkar reglur. Það sem ég sætti mig ekki við er að það sé logið að mér,“ sagði hún.

E News

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab