Vilja láta fjarlægja skilaboð Brands úr fangelsi
Brand, sem er 51 árs, var í síðustu viku dæmdur í tíu ára og sex mánaða fangelsi fyrir eina nauðgun og þrjú önnur kynferðisbrot gegn fjórum konum. AFP
Bresk stjórnvöld hafa óskað eftir því við Google, eiganda YouTube, að fyrirtækið fjarlægi myndband þar sem grínistinn Russell Brand heldur fram sakleysi sínu.
Breska dómsmálaráðuneytið staðfesti beiðnina í samtali við AFP. Myndbandið var enn aðgengilegt klukkan 11 að íslenskum tíma í dag.
Brand, sem er 51 árs, var í síðustu viku dæmdur í tíu ára og sex mánaða fangelsi fyrir eina nauðgun og þrjú önnur kynferðisbrot gegn fjórum konum. Eiginkona hans, Laura Brand, las upp yfirlýsingu frá honum í myndbandinu, sem birt var á YouTube-rás þeirra á sunnudag. Birtingin vakti þegar hörð viðbrögð hjá talsfólki brotaþola og stjórnmálamönnum.
Talsmaður Andys Burnhams, forsætisráðherra Bretlands, sagði myndbandið „augljóslega forkastanlegt“ daginn eftir birtingu þess. Breska dómsmálaráðuneytið sendi Google formlega beiðni um að fjarlægja myndbandið í kjölfarið, samkvæmt heimildum AFP.
„Það er eðlilegt að stjórnvöld óski eftir því að efni sem veldur brotaþolum vanlíðan verði fjarlægt. Við teljum eindregið að YouTube eigi að fjarlægja þetta efni,“ sagði talsmaður ráðuneytisins við AFP. Hann bætti við að skilmálar YouTube réðu því að lokum hvort myndbandið yrði fjarlægt.
BBC segir Google hafa hafnað beiðninni
Myndbandið hafði fengið yfir 850 þúsund áhorf klukkan 11 í dag. Um 6,6 milljónir eru áskrifendur að rás hjónanna.
BBC greindi frá því að Google hefði hafnað beiðninni á þeim forsendum að myndbandið bryti ekki gegn reglum YouTube. Talskona Google sagði í stuttri yfirlýsingu til AFP að fyrirtækinu væri kunnugt um myndbandið og að það væri til skoðunar.
Google tók YouTube-rás Brands úr samstarfsáætlun sinni í september 2023. Rásin hefur síðan verið án tekna af efni sínu í gegnum YouTube.
Fangelsisreglur gilda einnig um skilaboð sem aðrir birta
Bresk yfirvöld hafa bent á að föngum sé óheimilt að senda frá sér yfirlýsingar sem valda brotaþolum vanlíðan. Þeim er aðeins heimilt að ræða við fjölmiðla í undantekningartilvikum. Reglurnar gilda einnig þegar aðrir birta ummæli fyrir þeirra hönd. Vangaveltur hafa vaknað um hvort heimsóknir Lauru Brand í fangelsið og önnur samskipti hjónanna verði takmörkuð.
Matthew Pennycook, ráðherra í bresku ríkisstjórninni, sagði í samtali við BBC að ákvörðunin um að fjarlægja myndbandið væri í höndum Google. Stjórnvöld hefðu enga heimild til að skylda fyrirtækið til þess.
„Við lögðum fram beiðni í þessu tilviki vegna þess að við teljum eindregið að brotaþolar eigi ekki að þurfa að sjá þetta efni,“ sagði hann.
Reikningar Brands á Facebook og Instagram virðast ekki lengur aðgengilegir. Reikningur hans á X, þar sem hann er með tíu milljónir fylgjenda, er enn sýnilegur. Þar hefur ekkert verið birt síðan 11. nóvember.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗