Vill yfirgefa herbúðir Barcelona
Franski knattspyrnumaðurinn Jules Koundé vill yfirgefa herbúðir Spánarmeistara Barcelona strax í janúar.
Það er vefmiðillinn Football Insider sem greinir frá þessu en Kounde, sem er 28 ára gamall, hefur aðeins byrjað þrjá leiki í spænsku 1. deildinni á tímabilinu.
Koundé gekk til liðs við Barcelona frá Sevilla sumarið 2022 fyrir 50 milljónir punda og hefur verið í lykilhlutverki í varnarleik liðsins undanfarin ár.
Varnarmaðurinn er samningsbundinn Barcelona til sumarsins 2030 en Chelsea hefur mikinn áhuga á honum og gæti lagt fram tilboð í leikmanninn þegar janúarglugginn verður opnaður.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗