Ólafur hvarf sporlaust en er samt dæmdur í héraðsdómi – „Við erum bara að reyna að átta okkur á þessu“

Ágúst Borgþór Sverrisson

Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 12:30

Ólafur Austmann og Sofia, höfuðborg Búlgaríu

Ekkert hefur spurst til Ólafs Austmanns Þorbjörnssonar, 44 ára manns sem hvarf í Búlgaríu í ágústmánuði árið 2025. Hann var engu að síður sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, 18. nóvember 2026, fyrir smáafbrot. 

DV greindi frá hvarfi Ólafs í september árið 2025 og ræddi við systur hans, Ingibjörgu Austmann. Þá hafði ekki spurst til hans í hálfan mánuð. Ingibjörg sagði að bróðir hennar læti alltaf heyra í sér. Hún greindi frá því að hann hefði farið í ferðalag til Búlgaríu í lok júlí ásamt vinkonu sinni. Heimferðardagur var ekki ákveðinn en Ólafur hugðist þó koma aftur í vikunni sem hann hvarf.

Sjá einnig: Hvarf Ólafs Austmanns í Búlgaríu - „Hún hélt að hann væri að fara á klósettið en svo kom hann ekki til baka“

„Hann var með vinkonu sinni úti og hún er með vegabréfið hans. Hann er ekki með neitt á sér,“ sagði Ingibjörg. Þess vegna væri hún viss um að hann væri enn þá í landinu. En Ólafur sást síðast í höfuðborginni Sófíu, nálægt bensínstöð, í kringum 18. ágúst 2025.

Ingibjörg hafði miklar áhyggjur af bróður sínum, ekki síst af því hann var ekki heill heilsu. Hún sagði: „Hann greindist fyrir stuttu með taugasjúkdóm og var að fá krampaköst. Hann myndi ábyggilega ekki plumma sig mjög lengi einn.“ Og ennfremur: „Við óttumst virkilega um hann. Hann er fullorðinn maður og ber ekkert skylda til að hafa samband en hann gerir það alltaf. Hann á þrjú börn, þar á meðal fullorðna dóttur sem hann heyrir reglulega í.“

Dæmdur fyrir þjófnað

Í gær, þann 18. nóvember, var kveðinn upp dómur yfir Ólafi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hann var ákærður fyrir tvö þjófnaðarbrot í verslunum, sakfelldur og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. 

Brotin voru framin rúmlega ári áður en Ólafur hvarf í Búlgaríu. Réttað var yfir honum að honum fjarstöddum og aldrei tókst að birta honum ákæru, sem segir sig sjálft.

Hefur aldrei fundist

DV hafði aftur samband við Ingibjörgu Austmann í dag vegna málsins. Hún vissi af dómnum en hafði ekki fyrirfram vitneskju um ákæruna eða réttarhöldin. 

Ingibjörg staðfesti í samtali við blaðamann að bróðir hennar hefði aldrei komið fram eftir hvarfið í Búlgaríu í fyrra. Hún veit ekki hvort hann er lífs eða liðinn. Hún baðst undan því að tjá sig frekar um málið í bili en sagði að fjölskyldan væri að reyna að átta sig á þessum nýju vendingum: 

„Ekki að svo stöddu. Við erum ennþá bara að reyna að átta okkur á þessu,“ segir Ingibjörg Austmann. 

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab