Vélfag kvartar til umboðsmanns Alþingis

Vélfag gerir athugasemd við afskipti utanríkisráðuneytisins.

Vélfag gerir athugasemd við afskipti utanríkisráðuneytisins. Samsett mynd/mbl.is Eggert/mbl.is María

Vélfag ehf. hefur kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna málsmeðferðar utanríkisráðuneytisins í tengslum við frystingu fjármuna félagsins.

Félagið telur að stjórnvöld hafi ekki gætt að lögbundnum skyldum sínum og gagnrýnir meðal annars að ráðuneytið hafi ekki tekið efnislega afstöðu til beiðna þess um undanþágur frá frystingunni til greiðslu skulda. 

Þetta kemur fram í kvörtun sem Sigurður G. Guðjónsson lögmaður sendi umboðsmanni Alþingis fyrir hönd Vélfags 19. október síðastliðinn.

Kvörtunin beinist meðal annars að samskiptum utanríkisráðuneytisins og Arion banka vegna frystingar fjármuna félagsins á grundvelli alþjóðlegra þvingunaraðgerða gegn Rússlandi.

Óskaði eftir undanþágu til að greiða skuldir

Í kvörtuninni kemur fram að Vélfag hafi í ágúst og september ítrekað óskað eftir undanþágu frá frystingu fjármuna til að geta staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar.

Meðal annars hafi félagið óskað eftir heimild til að greiða kröfur lífeyrissjóða, skatta og annarra kröfuhafa.

Vélfag telur að ráðuneytið hafi ekki tekið fullnægjandi afstöðu til beiðnanna þrátt fyrir að hafa fengið upplýsingar um þær skuldbindingar sem félagið óskaði eftir að standa við.

Gagnrýnir afskipti ráðuneytisins

Í kvörtuninni eru einnig gerðar athugasemdir við samskipti utanríkisráðuneytisins við Arion banka og Landsbankann vegna frystingar fjármuna.

Vélfag telur að ráðuneytið hafi haft áhrif á ákvarðanir bankanna án þess að taka sjálft formlega stjórnvaldsákvörðun sem félagið gæti fengið endurskoðaða með hefðbundnum hætti.

Félagið óskar meðal annars eftir því að umboðsmaður Alþingis kanni hvort málsmeðferð ráðuneytisins hafi samrýmst stjórnsýslulögum og reglum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða.

Þá vill félagið að kannað verði hvort ráðuneytið hafi sinnt leiðbeiningarskyldu sinni og tekið mál þess til úrlausnar innan hæfilegs tíma.

Telur réttindi sín hafa verið skert

Vélfag telur að málsmeðferðin hafi skert möguleika félagsins til að standa við skuldbindingar sínar og halda starfsemi sinni gangandi.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab