Allt reynt til að opna Bláfjöllin sem fyrst
Innlent | Morgunblaðið | 19.11.2026 | 12:20
Snjóvélin í Bláfjöllum er búin að vera í gangi síðustu daga.
„Við þurftum að stoppa hana í gær út af vindi en reynum að framleiða eins mikið af snjó og aðstæður leyfa,“ segir Einar Bjarnason, rekstrarstjóri í Bláfjöllum, sem veit að skíðamenn bíða spenntir.
„Við reynum allt svo hægt sé að opna en getum víst ekki stjórnað veðrinu,“ segir Einar, en spáð er hlýrra veðri í næstu viku. „Við vonum það besta.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗