Staða heita vatnsins á Akureyri góð á ný
Staðan í birgðageymum hitaveitunnar á Akureyri er sögð orðin góð og komin vel upp fyrir öryggismörk.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurorku.
Greint var frá því fyrr í vikunni að neyðarstjórn Norðurorku væri í viðbragðsstöðu þar sem staða geymanna var fyrir neðan öryggismörk.
Borhola og olíuketill reyndust vel
Í tilkynningunni segir að samstillt átak starfsfólks Norðurorku, stórnotenda og almennings hafi skilað góðum árangri. Eftir ákall Norðurorku til notenda hafi staða birgðageymanna staðið í stað og jafnvel hækkað örlítið.
Þá segir að miklu hafi munað um að öflug borhola á Laugalandi hafi komist aftur í vinnslu í gærkvöldi eftir langvinna bilun. Viðgerðum á henni var flýtt eins og kostur var og staðan í geymunum því gjörbreytt frá því sem var í upphafi vikunnar.
Aukinheldur var olíuketillinn við Mímisbraut gangsettur en slíkt er sagt algjört neyðarúrræði og með því síðasta sem er gert eftir að búið er að skerða afhendingu til allra stórnotenda, til dæmis sundlaugar bæjarins.
Í þessu tilviki var ákveðið að ræsa ketilinn áður en farið var í að skerða afhendingu til sundlauga, þar sem kominn var tími á að prófa hann. Slíkar prófanir eru gerðar með reglulegu millibili og er þessi aðgerð sögð eiga drjúgan þátt í því að staðan hélst í jafnvægi og fór ekki neðar.
Þakka fyrir og brýna sparsemi í vatnsnotkun
Í tilkynningunni þakkar félagið viðskiptavinum, jafnt almenningi sem stórnotendum, fyrir góð viðbrögð, ásamt því sem starfsfólki er þakkað fyrir skjót viðbrögð.
Þá hvetja þau notendur til að hugsa vel um nýtingu á heitu vatni á heimilum og vinnustöðum og gæta þess að heitu vatni sé ekki sóað.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
