Bæjarar að stela efnilegasta leikmanni Liverpool?
Forráðamenn Þýskalandsmeistara Bayern München íhuga alvarlega að leggja fram tilboð í enska sóknarmanninn Rio Ngumoha.
Það er vefmiðillinn Teamtalk sem greinir frá þessu en Ngumoha, sem er 18 ára gamall, hefur áður verið orðaður við Bayern München.
Þrátt fyrir ungan aldur er hann orðinn mikilvægur hlekkur í liði Liverpool en hann er samningsbundinn enska félaginu til sumarsins 2028.
Forráðamenn Liverpool vinna nú hörðum höndum að því að framlengja samning hans en hann á að baki 44 leiki fyrir félagið þar sem hann hefur skorað tvö mörk og lagt upp önnur þrjú til viðbótar.
Real Madrid og París SG eru einnig sögð áhugasöm um sóknarmanninn en forráðamenn Liverpool vonast til þess að hann framlengi samning sinn á Anfield á næstu mánuðum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗