Segja að kossamálið í Hagaskóla varði í raun kynlíf - Myndir og myndskeið í dreifingu

Athygli vakti þegar stjórnendur Hagaskóla sendu forráðamönnum nemenda tölvupóst í gær til að upplýsa um að sést hefði til tveggja starfsmanna kyssast. Fréttir af málinu vöktu nokkra athygli á samfélagsmiðlum þar sem fólk furðaði sig á viðbrögðunum.

Sjá einnig: Kossamálið í Hagaskóla vekur mikla athygli: „Hvaða andskotans tepruskapur er þetta?“

Nú greinir mbl.is frá því að kossaflensið sé talið töluvert grófara en tölvupósturinn gaf til kynna. Hefur miðillinn heimildir fyrir því að myndir og myndskeið af meintum ástarlotum séu nú í dreifingu og að starfsmennirnir hafi verið að stunda kynlíf þar sem nemendur hefðu geta orðið vitni að athæfinu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab