Það sem stuðningsmenn Manchester United vilja heyra

Helgi Fannar Sigurðsson

Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 12:00

Mauricio Pochettino. GettyImages

Mauricio Pochettino er mættur til Manchester United eftir að hafa skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við félagið.

Argentínumaðurinn stýrði bandaríska landsliðinu í síðasta sinn á þriðjudag og flaug þaðan beint til Manchester. Hann tekur við United í 18. sæti en liðið hefur aðeins unnið einn leik á tímabilinu.

„Manchester er blá og verður það alltaf,“ sagði fyrrum leikmaður Manchester City, DaMarcus Beasley, við Pochettino eftir síðasta landsleikinn.

„Engan veginn. Þú skalt sjá til. Gefðu mér tíma og það mun breytast,“ svaraði Pochettino.

Fyrsti leikur hans með United verður gegn Liverpool á Anfield á sunnudag.

„Við megum ekki sóa sekúndu. Nú er ekki tími til að hvíla sig eða sofa. Við þurfum að vera tilbúnir í að mæta Liverpool,“ sagði Pochettino um það verkefni.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab