Tæpir fimm milljarðar í samþykktum tilboðum
Alls bárust tilboð að nafnvirði 3.380 milljónir króna á kröfubilinu 7,69–7,95%. Heildarstærð flokksins er nú 52.185 milljónir króna að nafnvirði. mbl.is/Eyþór
Reykjavíkurborg tók tilboðum í skuldabréf að nafnvirði 4.935 milljónir króna í útboði í tveimur skuldabréfaflokkum. Alls bárust tilboð að nafnvirði 5.085 milljónir króna, samkvæmt kauphallartilkynningu borgarinnar í morgun.
Um tveir þriðju hlutar samþykktra tilboða voru í óverðtryggða flokknum RVKN 35 1, sem er á lokagjalddaga árið 2035. Þar tók borgin tilboðum að nafnvirði 3.270 milljónir króna á 7,90% ávöxtunarkröfu.
Alls bárust tilboð að nafnvirði 3.380 milljónir króna á kröfubilinu 7,69–7,95%. Heildarstærð flokksins er nú 52.185 milljónir króna að nafnvirði.
Lægri ávöxtunarkrafa en í október
Í verðtryggða flokknum RVK 44 1, sem er á lokagjalddaga árið 2044, tók borgin tilboðum að nafnvirði 1.665 milljónir króna á 3,76% ávöxtunarkröfu. Alls bárust tilboð að nafnvirði 1.705 milljónir króna á kröfubilinu 3,70–3,77%. Heildarstærð flokksins er nú 20.758 milljónir króna að nafnvirði.
Í útboði á sama flokki í október tók borgin tilboðum að nafnvirði 500 milljónir króna á 3,78% ávöxtunarkröfu. Ávöxtunarkrafan lækkaði því um 0,02 prósentustig milli útboða.
Arion banki, Fossar fjárfestingarbanki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbankinn höfðu umsjón með útboðinu. Uppgjör viðskiptanna fer fram 24. nóvember.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗