„Frábær þróun frá því þegar ég var unglingur“

Rakel Ósk Hreinsdóttir starfar sem vörustjóri snyrtivara Hagkaupa.

Rakel Ósk Hreinsdóttir starfar sem vörustjóri snyrtivara Hagkaupa. Ljósmynd/Aðsend

Rakel Ósk Hreinsdóttir hefur starfað sem vörustjóri snyrtivara Hagkaupa frá árinu 2018. Hún ber ábyrgð á vöruúrvalinu og þróun snyrtivörudeildanna sem hefur verið hröð undanfarin ár. Starf hennar snýr að innkaupum og úrvali mismunandi vara og vörumerkja.

„Þetta er meðal annars metið með því að greina hverju viðskiptavinir okkar eru að sækjast eftir, fylgjast með markaðnum og tryggja þannig að við séum með eins áhugavert og fjölbreytt vöruúrval og við getum hverju sinni,“ segir Rakel.

Hún segir þetta lifandi starf því snyrtivöruheimurinn sé sífellt á hreyfingu og breytist hratt. Stór hluti starfsins er að fylgjast með nýjungum, straumum og breyttum óskum neytenda.

Þið hafið nýverið uppfært snyrtivörudeildir Hagkaupa – af hverju og hvernig?

„Það er okkur mikilvægt að viðskiptavinir okkar fái góða, þægilega og eftirminnilega upplifun þegar þeir heimsækja okkur. Að þeir finni að við höfum metnað fyrir þessu, veitum góða þjónustu og að fallegu vörumerkin okkar fái að njóta sín í umhverfi sem fer þeim vel, ef svo má segja. Snyrtivöruheimurinn er mjög hraður og nýjungagjarn svo það er stanslaust flæði af nýjum vörumerkjum að koma á markaðinn. Eðlilega er ekki hægt að vera með allt í boði en með því að breyta og uppfæra reglulega náum við að aðlaga okkur betur að því vöruúrvali sem við viljum hafa hverju sinni,“ svarar hún.

„Í lok október vorum við að ljúka stórri breytingu í Smáralind. Verslunin MAC í Smáralind lokaði fyrr á árinu og í takt við það sem er að gerast hjá merkinu erlendis, þá tókum við þá ákvörðun að koma MAC þess í stað inn í snyrtivörudeildina okkar. Með þeirri ákvörðun náðum við að uppfæra og stækka deildina í leiðinni. Breyta uppröðun merkja til að meðal annars koma fleiri nýjum vörumerkjum að hjá okkur.“

„Í lok október vorum við að ljúka stórri breytingu í Smáralind. Verslunin MAC í Smáralind lokaði fyrr á árinu og í takt við það sem er að gerast hjá merkinu erlendis, þá tókum við þá ákvörðun að koma MAC þess í stað inn í snyrtivörudeildina okkar. Með þeirri ákvörðun náðum við að uppfæra og stækka deildina í leiðinni.“ Ljósmynd/Aðsend

Kóreskar húðvörur vinsælar 

Hver er vinsælasta snyrtivaran í dag?

„Það er eiginlega ekki hægt að svara þessari spurningu öðruvísi en að tala um vöruflokka. Frá tíma heimsfaraldursins hefur sala á húðumhirðuvörum og andlitsmöskum vaxið gífurlega. Þessar vinsældir eiga enn vel við í dag enda sjáum við gífurlegan vöxt í framboði nýrra húðumhirðuvörumerkja og einna helst í kóreskum húðvörum eða K-beauty eins og margir þekkja það. Við erum að sjálfsögðu með nokkur vinsæl K-beauty vörumerki í sölu hjá okkur og sjáum mikinn vöxt í þeim á þessu ári,“ segir Rakel.

„Þó að sá flokkur sé búinn að stækka mikið þá verður það ekki tekið af glæsilega úrvalinu okkar í ilmum en það er okkar stærsti vöruflokkur á árinu. Það gengur líka ótrúlega vel hjá íslensku vörumerkjunum okkar heilt yfir, stórum og smáum. Bioeffect er þar í fararbroddi en Dóttir Skin, Chilli in June og ChitoCare eru vaxandi merki hjá okkur í ár og við fögnum því að vera einnig komin með Blue Lagoon Skin Science í okkar vöruframboð. Við sjáum líka flottan vöxt í lúxus förðunarvörum og er mesta aukningin í ár í Dior með tilkomu Backstage-línunnar frá þeim og svo Yves Saint Laurent eða YSL. Hár- og sjálfbrúnkuvörur eru einnig enn í vexti svo það er af nægu að taka.“

Þurfið þið að vera nýjungagjarnari í dag en áður?

„Já, klárlega. Það eru mörg gríðarlega sterk vörumerki sem eru og verða alltaf klassík. Samfélagsmiðlar spila þó stórt hlutverk í heimi snyrtivara í dag og hafa mikil áhrif á hvaða vörumerki fá athygli hverju sinni, alveg óskylt því hvort þau eigi „hype-ið“ skilið eða ekki. Við þurfum að vera vakandi fyrir því sem er að gerast og fylgjast með erlendum mörkuðum. En það snýst ekki bara um að elta alla tískustrauma. Við þurfum líka að þekkja okkar markað, okkar viðskiptavini og velja nýjungar sem við teljum að muni höfða til þeirra.“

Upplifun viðskiptavinarins er mjög mikilvæg.

Upplifun viðskiptavinarins er mjög mikilvæg. Ljósmynd/Aðsend

Ungt fólk kynnir sér vörurnar

Rakel segir deildina reglulega fá fyrirspurnir um ýmis vörumerki sem eru vinsæl á samfélagsmiðlum.

„En það sem alltof fáir vita er að allar snyrtivörur sem seldar eru hjá Hagkaup eru keyptar af viðurkenndum íslenskum dreifingaraðilum sem bera ábyrgð á að vörurnar uppfylli íslenskar og evrópskar reglugerðir og séu þar með rekjanlegar beint til framleiðanda. Mörg vörumerki, sem vissulega er hægt að nálgast með öðrum leiðum, uppfylla annaðhvort ekki þessar reglugerðir eða einfaldlega hafa ekki áhuga á að koma inn á íslenskan markað sem í stóra samhenginu er agnarsmár, eins leiðinlegt og það er að segja það.“

Hvað vill unga fólkið helst versla?

„Unga fólkið er mjög meðvitað um snyrtivörur og fylgist mikið með því sem er að gerast á samfélagsmiðlum, þá sérstaklega TikTok og Instagram. Þessi hópur neytenda pælir oft mikið í því sem það er að kaupa og hvort það henti sinni húð. Þetta er svo frábær þróun frá því þegar ég var unglingur,“ segir hún og hlær.

Hún segir yngra fólk kynna sér vörurnar vel, skoða innihaldsefni og lesa ótal umsagnir um vörurnar til að mynda sér skoðun á hvort það telji hana henta sér.

„Þau festa sig síður í einu ákveðnu vörumerki, heldur velja það besta fyrir sig úr mörgum mismunandi vörumerkjum. Það er ekki hægt að hafa bara fallegar umbúðir og segja að þetta sé aðalmálið, varan þarf líka að standast væntingar. Það skýrir að ákveðnu leyti hraðann og úrvalið í þessum síbreytilega heimi snyrtivörunnar.“

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab