Frá Akranesi á Hlíðarenda
Knattspyrnumaðurinn Ómar Björn Stefánsson er genginn til liðs við Val frá ÍA.
Þetta tilkynntu Valsmenn á samfélagsmiðlum sínum en Ómar, sem er 22 ára gamall, skrifaði undir þriggja ára samning sem gildir út keppnistímabilið 2029.
Hann er uppalinn hjá Fylki en gekk til liðs við ÍA fyrir keppnistímabilið 2025. Hann skoraði tvö mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni í sumar.
Valur hafnaði í 8. sæti Bestu deildarinnar á nýliðnu keppnistímabili en Halldór Árnason tók við þjálfun liðsins eftir tímabilið.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/34/1693439.jpg)