10 frábærar jólagjafir fyrir ástríðukokkinn
Hjá Bako Verslunartækni, BVT, Draghálsi 22, má finna gjafir fyrir bæði kokkinn og gestgjafann. Samsett mynd/Aðsend
Góð jólagjöf getur orðið upphafið að mörgum eftirminnilegum kvöldum. Potturinn fer á borðið, nýju glösin fá sína fyrstu skál og gestgjafinn finnur tilefni til að bjóða heim aftur. Fyrir þann sem hefur ástríðu fyrir mat fylgja bestu gjöfunum nefnilega hugmyndir að því sem hægt er að gera með þeim.
Hjá Bako Verslunartækni, BVT, Draghálsi 22, má finna gjafir fyrir bæði kokkinn og gestgjafann, allt frá japönskum hnífum og fallegum steypujárnspottum til kokteiláhalda og kampavínssverðs sem gæti orðið að umræðuefni kvöldsins. Hér eru tíu hugmyndir undir jólatréð fyrir fólkið sem gerir sér mat úr því að gleðja aðra.
Lava steypujárnspottar
Fallegur pottur á erindi bæði á eldavélina og veisluborðið. Steypujárnspottarnir frá Lava dreifa hitanum jafnt og halda honum vel, hvort sem á matseðlinum er hægeldaður pottréttur eða sunnudagssteik. Þeir henta á allar gerðir helluborða og mega einnig fara á grill og í ofn. Svo er bara að bera pottinn beint á borðið og kalla fólkið saman.
Skoða Lava hjá BVT.
Steypujárnspottarnir frá Lava halda vel hita og fara beint af eldavélinni á matarborðið. Ljósmynd/Aðsend
Japanskir hnífar
Góður hnífur er eitt af þeim áhöldum sem kokkurinn grípur til á hverjum degi. Japanskir hnífar eru eftirsóttir fyrir vandaða smíði og fína egg sem skilar hreinum og nákvæmum skurði. Hamrað yfirborðið hjálpar jafnframt til við að draga úr því að hráefni loði við blaðið. Gjöf fyrir þann sem kann að meta góð verkfæri í eldhúsinu.
Skoða japanska hnífa hjá BVT.
Vönduð smíði og fín egg einkenna japönsku hnífana sem henta þeim sem kunna að meta nákvæm vinnubrögð í eldhúsinu. Ljósmynd/Aðsend
Falleg rauðvínskarafla
Sumar gjafir setja strax svip á borðið. Classico-karaflan frá Zwiesel er úr Tritan-kristalgleri og sameinar fallega framsetningu og notagildi með því að lofta rauðvínið áður en það er borið fram. Hún er með dropavörn og má fara í uppþvottavél. Falleg gjöf fyrir vínunnandann sem hefur ánægju af því að vanda til smáatriðanna.
Skoða Zwiesel Classico-karöfluna hjá BVT.
Classico-karaflan frá Zwiesel loftar rauðvínið og setur fallegan svip á veisluborðið. Ljósmynd/Aðsend
Kampavínssverð
Hvað gefur maður gestgjafanum sem á þegar flest? Kampavínssverð gæti verið svarið. Sverðið frá Cozy & Trendy er 42 sentímetrar að lengd og óvenjuleg gjöf fyrir þann sem kann að meta hátíðlega framreiðslu. Það verður að minnsta kosti eitthvað að tala um þegar pakkinn er opnaður.
Skoða kampavínssverðið hjá BVT.
Kampavínssverðið frá Cozy & Trendy er óvenjulegur pakki undir jólatréð fyrir gestgjafann sem á flest. Ljósmynd/Aðsend
Schott Zwiesel-gjafasett
Fern falleg kokteilglös á fæti, glerrör og hreinsibursti koma saman í þessu gjafasetti frá Schott Zwiesel. Glösin eru úr Tritan-kristalgleri sem sameinar tærleika, brotþol og þol fyrir endurteknum vélþvotti. Þau eiga vel við þegar blanda á spritz eða annan uppáhaldskokteil og setjast niður með góðum vinum.
Skoða gjafasettið hjá BVT.
Fern kokteilglös á fæti, glerrör og hreinsibursti mynda gjafasett frá Schott Zwiesel fyrir næsta kokteilkvöld. Ljósmynd/Aðsend
Bar Professional-kokteilasett
Fyrir þann sem hefur gaman af því að blanda drykki og prófa nýjar uppskriftir er gott að hafa réttu áhöldin við höndina. Í settinu frá Bar Professional eru Boston-hristari, mæliglas, barsigti, kokteilstautur, barskeið og flöskustútar. Vel samsettur grunnur fyrir heimabarinn, þar sem rétt hlutföll og góð handtök fá að njóta sín.
Skoða kokteilasettið hjá BVT.
Kokteilasettið frá Bar Professional færir heimabarnum áhöld til að mæla, hrista, hræra og prófa nýjar drykkjauppskriftir. Ljósmynd/Aðsend
Pintinox Stone Black-panna
Panna sem er mikið notuð þarf að standast kröfur eldhússins. Stone Black-pannan frá ítalska fyrirtækinu Pintinox er úr þykku, mótuðu áli með þriggja laga viðloðunarfrírri húð. Stálskaftið er fest með tveimur sterkum hnoðum og Air Flow-hönnun þess dregur úr hitnun við notkun á helluborði. Pannan er 28 sentímetrar í þvermál og hentar á öll helluborð, þar á meðal spanhellur.
Skoða Pintinox-pönnuna hjá BVT.
Stone Black-pannan frá Pintinox er með viðloðunarfrírri húð og hentar á öll helluborð, þar á meðal spanhellur. Ljósmynd/Aðsend
HORL 3-hnífabrýni
Góðir hnífar eiga skilið gott viðhald. HORL 3 byggist á segulkubbi sem heldur hnífnum við stöðugt 15 eða 20 gráða horn á meðan brýninu er rúllað meðfram egginni. Demantsskífa sér um brýninguna og keramikskífa um fínvinnsluna. Skífurnar eru skiptanlegar og eikarútgáfan er framleidd úr gegnheilum viði í Þýskalandi. Gjöf fyrir þann sem vill halda uppáhaldshnífunum í góðu formi.
Skoða HORL 3 hjá BVT.
HORL 3 heldur hnífnum við stöðugt horn meðan eggin eru brýnd með demantsskífu og fínpússuð með keramikskífu. Ljósmynd/Aðsend
WMF-steikarhnífapör
Þegar steikin er komin á borðið taka góð hnífapör við. Í trékassanum frá WMF eru sex steikarhnífar og sex gafflar. Hnífarnir eru smíðaðir úr einu stykki af ryðfríu hnífastáli og hertir í heild, með tennta egg sem er hönnuð til að halda skurðgetunni lengi. Settið þolir uppþvottavél og er falleg gjöf fyrir þann sem hefur gaman af því að leggja á borð.
Skoða WMF-steikarhnífapörin hjá BVT.
Sex steikarhnífar og sex gafflar koma í trékassa frá WMF, tilbúin fyrir næstu steikarveislu. Ljósmynd/Aðsend
Leðursvunta
Svunta getur verið bæði vinnufélagi í eldhúsinu og hluti af stíl kokksins. Ljósbrúna leðursvuntan frá Cozy & Trendy er með stillanlegum ólum við háls og mitti, rúmgóðum framvasa og stálhring fyrir viskastykkið. Persónuleg gjöf með hagnýtum smáatriðum fyrir þann sem vill hafa allt við höndina þegar eldamennskan er í fullum gangi.
Skoða leðursvuntuna hjá BVT.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗









