Munnmök í barnalauginni: „Varð til opinbers hneykslis“
Innlent | mbl | 19.11.2026 | 11:30
Héraðssaksóknari hefur ákært tvo karlmenn fyrir munnmök og aðrar kynferðislegar athafnir í barnalaug Laugardalslaugar. Mennirnir eru á fertugs- og fimmtugsaldri.
Samkvæmt ákæru snerti annar maðurinn getnaðarlim hins með höndum og fótum og veitti honum auk þess munnmök á meðan þeir voru staddir í barnalauginni, en „athæfi þeirra var til opinbers hneykslis“, eins og segir orðrétt í ákærunni. Atvikið átti sér stað þann 12. júlí 2025.
Ákært er fyrir brot gegn blygðunarsemi, en brotið telst varða 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Er þess krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗