Mögnuð tölfræði Hákonar í Þjóðadeildinni
Hákon Arnar Haraldsson fór mikinn með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í Þjóðadeildinni í haust.
Miðjumaðurinn, sem er 23 ára gamall, er í efsta sæti tölfræðiveitunnar Squawka yfir þá leikmenn sem unnu boltann oftast af mótherjum sínum í riðlakeppninni.
Hákon vann boltann 50 sinnum af mótherjum sínum og er í langefsta sætinu en Hvít-Rússinn Kirill Pechenin er í öðru sætinu með 38 unna bolta.
Þá er hann í öðru sæti á eftir frönsku stórstjörnunni Michael Olise yfir flestar heppnaðar sendingar inn í vítateig andstæðinga sinna en alls átti hann 18 þannig sendingar.
Þá er hann í 5. sæti listans yfir flestar stungusendingar, eða sex talsins, og í 8. sætinu yfir flestar stoðsendingar, eða þrjár talsins.
The 2026/27 Nations League stat leaders. 📊 Swipe for the top 10 players across a host of different metrics.👉 https://t.co/Az9vj7a6Qz
— Squawka (@Squawka) November 18, 2026
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗