Ómar Björn kominn í Val

Knattspyrnudeild Vals hefur samið við sóknarmanninn Ómar Björn Stefánsson til þriggja ára, eða út tímabilið 2029. Ómar Björn kemur til félagsins frá ÍA.

Ómar Björn er fæddur árið 2004 og uppalinn í Fylki, þar sem hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki. Hann gekk síðan til liðs við ÍA og hefur verið í stóru hlutverki hjá Skagamönnum í Bestu deildinni. Þá hefur hann leikið með U21 árs landsliði Íslands.

Ómar Björn er fljótur og kraftmikill sóknarmaður sem nýtur sín best á vinstri kantinum. Hann er ungur að árum og á mikið inni og það er mikill fengur fyrir Val að fá hann í sínar raðir.

„Ég er virkilega ánægður með að fá tækifæri til að spila fyrir Val. Pabbi lék hér á sínum tíma og bróðir minn er í liðinu, svo þetta félag stendur mér nærri. Ég er mjög hrifinn af því sem Dóri og þjálfarateymið eru að byggja upp og ætla að leggja mig allan fram í þeim kraftmikla fótbolta sem liðið mun spila. Ég hlakka mikið til að kynnast strákunum og öllum í kringum félagið og get ekki beðið eftir að tímabilið hefjist,“ segir Ómar Björn.

Knattspyrnudeild Vals býður Ómar Björn hjartanlega velkominn á Hlíðarenda.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab