Snorri svarar föstum skotum Þorbjargar með óvæntu boði

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, hefur boðið Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að koma til sín í hlaðvarpið Ritstjórann eftir nokkuð snörp orðaskipti þeirra á Alþingi í gær.

Tilefni orðaskiptanna voru áform fimm Evrópuríkja, þar á meðal Danmerkur, um að koma á fót brottfararstöð í Rúanda fyrir fólk sem hefur fengið synjun um alþjóðlega vernd.

Snorri leitaði svara hjá ráðherra um þá afstöðu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra að ekki væri ástæða fyrir Ísland að taka þátt í slíku samstarfi.

„Titlar sig ritstjórann og talar um verkleysi“

Snorri deilir umfjöllun Mannlífs af málinu, en Þorbjörg skaut nokkuð föstum skotum að Snorra í umræðum á Alþingi í gær.

„Ég er ekki viss um að danskir þingmenn mæti í þingsal alla daga eins og hv. þingmaður gerir og sitji svo hjá í útlendingamálum, fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig ritstjórann og talar um verkleysi. Ég sé ekki alveg kraftinn og þungann í þeim aðgerðum,“ sagði Þorbjörg.

Dyggur hlustandi?

Snorri svarar ráðherra í færslu á Facebook í dag.

„Vissulega er það ljós punktur að dómsmálaráðherra sé dyggur hlustandi hlaðvarpsins og þakkarvert að hún noti tímann í þingsal til að vekja athygli á lítilmótlegri útgáfustarfsemi minni.“

Hann býður Þorbjörgu í kjölfarið að koma til sín í þáttinn í þeirri von að þar fáist loks svör við spurningum hans.

Snorri gagnrýnir einnig afstöðu forsætisráðherra og setur spurningarmerki við að hún skuli taka forystu í máli sem hann telur heyra undir dómsmálaráðuneytið.

Hann bendir jafnframt á að Þorbjörg hafi áður lýst áhyggjum af því að íslenskt regluverk í útlendingamálum sé opnara en annars staðar á Norðurlöndum.

„Þær áhyggjur eiga bara við þegar hentar,“ segir Snorri.

Þá er áhuginn minni

Hann viðurkennir að hugmyndir Miðflokksins um breytingar á hæliskerfinu gangi lengra en áform Evrópuríkjanna fimm en telur að leið þeirra kunni að vera nauðsynlegt fyrsta skref.

Þá sendir hann Viðreisn tóninn undir lok færslunnar og segir flokkinn helst hafa áhuga á alþjóðlegu samstarfi þegar því fylgi nýtt og íþyngjandi regluverk.

„Þegar nágrannaþjóðir okkar leita lausna í útlendingamálum er áhuginn minni.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab