Florence Pugh er komin með nóg af athugasemdum um útlit hennar - „Hvað í andskotanum, fólk?“
Fókus
Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 11:28
Florence Pugh. Mynd/Getty
Leikkonan Florence Pugh er búin að fá sig fullsadda af athugasemdum um útlit sitt. Undanfarið hafa myndir verið birtar af henni í netheimum sem eru sagðar sanna að leikkonan hafi gengist undir hnífinn. Hún segir það af og frá. Fólk sé hreinlega að bera saman myndir af henni frá mismunandi aldursskeiðum. Hún sé að eldast og það sé fullkomlega eðlilegt.
Florence birti langa færslu á Instagram þar sem hún bað fólk um að sýna smá tillitsemi áður en það leyfir sér að gera athugasemdir við líkama annarra.
„Úff, þá byrjar ballið. Mér finnst það mjög stressandi að vakna við að þúsundir séu að ræða líkama minn með óskiljanlegum hætti. Ég er auðvitað meðvituð um að í menningu samfélagsmiðla í dag er fólk mjög upptekið af lýtaaðgerðum og breytingum af völdum ozempic. Þetta er augljóslega orðinn hluti af tíðaranda okkar ásamt þessum tryllingi þar sem fólk er að berjast við að greina á milli þess sem er raunverulegt og falsað.“
Sannleikurinn er sá að ég er þrítug
Leikkonan segist hafa vaknað um daginn og þá lesið á samfélagsmiðlum að hún hafi verið á þyngdarstjórnunarlyfjum, farið í ýmsar lýtaaðgerðir, fitusog og hvaðeina.
„Hvað í andskotanum, fólk? Ég hafði ekki hugmynd um að ein manneskja gæti farið í allar þessar aðgerðir á einu bretti þótt hún vildi. Já, ég er kjaftstopp. Yfir þeim konum sem halda nú að ég sé eitthvað sem ég er ekki og yfir því að líkami minn sé krufinn og skrumskældur, enn og aftur.“
Allt frá því að ferill hennar í sviðsljósinu hófst hefur leikkonan þurft að þola stöðugar athugasemdir við þyngd sína og útlit. Hún reyndi ávallt að láta slíkt sem vind um eyru þjóta. Hún hafi aldrei tekið þyngdarstjórnunarlyf og aldrei farið í lýtaaðgerð.
„Sannleikurinn er sá að ég er orðin þrítug og áramótaheitið mitt var að breyta sambandi mínu við áfengi og ná að gera að minnsta kosti eina upphífingu í ræktinni.“
Myndirnar sem nú eru að ganga sýna leikkonuna annars vegar á einum versta tíma lífs hennar þar sem hún fór illa með sjálfa sig og var haldin mikilli depurð. Hin myndin er frá verðlaunahátíð sem var haldin á dögunum þar sem leikkonan er hamingjusöm og hraust. Undanfarið ár hefur hún hugað vel að svefni, næringu og hreyfingu. Hún hætti að taka heilsunni sem sjálfsögðum hlut og hefur lagt mikla áherslu á styrktaræfingar. Hún hefur misst eitt kíló af þyngd en bætt á sig miklum vöðvamassa.
„Ég er að hugsa vel um sjálfa mig og það er allt og sumt.“
Stefnir aðilum sem dreifðu lygum og gervigreindarmyndum
Árum saman hefur rignt yfir hana athugasemdum um útlit hennar. Hún var kölluð feitt svín, hvött til þess að hreyfa sig meira eða fara á þyngdarstjórnunarlyf. Henni var refsað fyrir að vera sátt í eigin skinni.
„Ég hef ávallt verið meðvituð um að sjálfsörugg kona sem er sátt við sjálfa sig er stuðandi fyrir marga. Lengi sætti ég mig við að ég myndi alltaf þurfa að þola svona athugasemdir.“
Núna telur leikkonan þó rétt að staldra við og biðja fólk um að líta í eigin barm og spyrja hvers vegna það finnur fyrir þörfinni á að velta sér upp úr útliti annarra með þessum hætti. Sárast fannst henni þegar miðill keypti falsaðar gervigreindarmyndir af henni. Myndirnar áttu að sýna leikkonuna í fylliefnameðferð og var fullyrt að Florence væri að hvetja aðdáendur og fylgjendur til að skella sér í Botox og varafyllingar. Florence hefur stefnt ábyrgðaraðilum í því máli.
„Þau lugu til að selja sögu og það olli mér tjóni. Ekki saurga orðspor mitt með þessum hætti.“
Leikkonan segir mannkynið nú lifa á sturluðum tímum þar sem kröfur um fegurð eru sífellt að verða strangari. Það sé nauðsynlegt að sýna öðrum mildi. Ef ætlunin er að snúa þessari þróun við þurfi fólk að spyrja sig hvers vegna það sé svona upptekið af öðrum. Ekkert muni breytast nema almenningur og fólk í sviðsljósinu taki höndum saman.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗