Fimm ungir menn fórust með Eldhamri - Skipverjinn sem lifði hélt að félagarnir kæmu sömu leið: „Þetta er búið að vera eins og skuggi eða poki á bakinu á mér í 35 ár“
Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 11:30
Samsett mynd: Eyþór Björnsson og Ólafur Arnberg. Mynd: Skjáskot YouTube. Eldhamar á strandstað við Hópsnes. Mynd: Skjáskot timarit/DV-JAK.
Þann 22. nóvember 1991 fórust fimm ungir skipverjar á Eldhamri GK-13 þegar skipið strandaði á Hópsnestá skammt frá innsiglingunni að höfninni í Grindavík. Stýrimaðurinn, sem komst einn lífs af, var ákærður fyrir manndráp af gáleysi en sýknaður af ákærunni.
Nú þegar 35 ár eru liðin frá þessu mannskæða og hörmulega strandi tekur Sigursteinn Másson málið til umfjöllunar í þáttaröð sinni Sönn sakamál í sjónvarpi Símans Premium.
„Þetta er búið að vera eins og skuggi eða poki á bakinu á mér í 35 ár“, segir Ólafur Arnberg útgerðarmaður og eigandi Eldhamars í þættinum.
Eldhamar hafði verið á línuveiðum suðaustur af Grindavík þennan nóvemberdag og var haldið snemma af stað til hafnar þar sem skipverjar hugðust mæta í fertugsafmæli útgerðarmannsins. Afmælið átti að hefjast klukkan átta en tíu mínútum fyrir átta barst neyðarsímtal úr farsíma Eldhamars. Báturinn hafði strandað á vestanverðu Hópsnesi. Í upphafi var ekki talin mikil hætta á ferðum þar sem veður var gott, hægur vindur en þó nokkur alda.
Vegna misskilnings hjá vaktmanni Landhelgisgæslunnar var varnarliðsþyrla ekki kölluð út fyrr en um klukkustund eftir skipsstrandið en eina björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar á þeim tíma var biluð á Ísafirði. Þá höfðu skipverjarnir sex allir lent í sjónum þar sem Eldhamar sökk snögglega að framanverðu og lagðist á hliðina á meðan brotin gengu yfir skipið.
Þeir sem fórust með Eldhamri voru allir ungir menn, á aldrinum 24 til 32 ára. Fjórir þeirra létu eftir sig eiginkonu. Átta börn ólust upp án feðra sinna:
Árni Bernharð Kristinsson, skipstjóri, sem var 32 ára, Bjarni Guðbrandsson, vélstjóri, sem var 31 árs, Sigurður Kári Pálmason, matsveinn, sem var 27 ára, Hilmar Þór Davíðsson, vélavörður, sem var 24 ára og Kristján Már Jósefsson, háseti, sem var 25 ára.
Í þættinum, sem kemur í Sjónvarp Símans Premium þann 19. nóvember, ræðir Sigursteinn Másson við björgunaraðila sem lögðu mikið á sig við erfiðar aðstæður á Hópsnesi, tvær ekkjur skipverja sem fórust og stýrimanninn sem einn komst lífs af. Áleitnar spurningar eru uppi um aðdraganda strandsins og er farið yfir þau atriði í þættinum. Í ákærunni á hendur stýrimanninum var gengið út frá því að hann hafi ekki vakið skipstjórann tímanlega en stýrimaðurinn fullyrðir að skipstjórinn hafi verið við hliðina á honum í brúnni í aðdraganda hins hörmulega atviks. Útgerðarmaðurinn telur það ekki geta staðist.
Mynd: Skjáskot YouTube.
Um leið og strand Eldhamars er eitt mannskæðasta sjóslys við Ísland á síðustu fjörutíu árum þá markaði það tímamót í björgunarmálum landsmanna því það var ekki fyrr en í framhaldi af þessum hræðilega atburði að loks var gengið í það verk að kaupa nýja björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna.
Eyþór Björnsson, stýrimaðurinn sem komst lífs af var 26 ára. Hann var í viðtali við DV 27. nóvember 1991.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗