Gauti baunaði á Stefán Einar – Viðbrögðin létu ekki á sér standa
Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 11:30
Gauti B. Eggertsson og Stefán Einar Stefánsson. Samsett mynd/Wikimedia Commons
Það er aldrei lognmolla þegar hagfræðiprófessorinn Gauti B. Eggertsson tekur til máls á vettvangi Stefáns Einars Stefánssonar umsjónarmanns Spursmála, á því var engin undantekning þegar Stefán Einar skaut á Blaðamannafélag Íslands.
Blaðamannafélagið hafði látið vinna könnun þar sem kom í ljós að um fjórðungur íslenskra blaðamanna hafi á einhverjum tímapunkti sleppt því að fjalla um ákveðið mál af ótta við viðbrögðin.
Sjá einnig: Fjórðungur íslenskra blaðamanna hefur sleppt því að fjalla um mál af ótta við viðbrögðin
Stefán Einar sagði við það tilefni á Facebook:
„Ég tek fram að ég hef aldrei orðið fyrir áreitni eða fjandsemi vegna fréttaflutnings og ég hef aldrei hætt við að fjalla um eitthvað mál af ótta við viðbrögðin sem það myndi kalla fram. En ég er heldur ekki í Blaðamannafélaginu sem stýrt er af fólki sem er í pólitískum aktívisma og stendur bara vörð um réttindi og öryggi sumra blaðamanna - og aldrei þeirra sem starfa hjá Morgunblaðinu.“
Gauti lét ekki eftir sér bíða og baunaði á Stefán Einar:
„Vandinn við þig Stefán Einar, er að þú segir ekki satt. Það er vissulega tiltekinn galli fyrir blaðamann.“
Viðbrögð Stefáns Einars létu ekki á sér standa:
„Þú hefur kosið að fara þessa leið enda ert þú að missa virðingu meira og minna allra sem fylgjast með framgöngu þinni. Virðir ekki höfundarrétt og skautar fram hjá staðreyndum sem ekki henta pólitískum en ekki akademískum málstað þínum, sem þú í sífellu reynir að fela bak við prófessorsskikkjuna,“ sagði Stefán Einar og bætti við:
„Láttu nú af þessu ömurlega rausi þínu. Þetta fer þér alls ekki vel.“
Gauti botnaði umræðuna með léttum hætti: „Ég sé að það er mikil stemning og fjör hérna á síðunni þinni, og fólk almennt í góðu skapi.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗