Fresta lokun bensínstöðvar
Reykjavíkurborg hefur frestað lokun bensínstöðvar Olís í Álfheimum um eitt ár eða til 1. janúar 2028.
Við Álfheima/Suðurlandsbraut hefur verið rekin stór, afkastamikil og fjölsótt bensínstöð í tæp 70 ár. Einnig er þar verslun og veitingastarfsemi.
Til stendur að fjarlægja bensínstöðina og eldsneytistanka. Í staðinn á að byggja tvö fjölbýlishús á lóðinni með allt að 85 íbúðum.
Byggingarnar ásamt bílakjallara verði samtals 13.280 fermetrar.
Er þetta í samræmi við samning Reykjavíkurborgar og olíufélaganna frá 2021 um fækkun bensínstöðva í höfuðborginni og uppbyggingu íbúðarhúsa á lóðunum.
Á fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur var tekin fyrir umsókn Olís um endurnýjun starfsleyfis fyrir bensínstöðina við Álfheima 49.
Skipulagsfulltrúi gerir ekki athugasemd við að starfsleyfi verði veitt og endurnýjað til eins árs.
Tafir hafi orðið á vinnslu deiliskipulags á lóðinni við Álfheima og sömuleiðis tafir á borgarlínuverkefninu, en vagnar hennar munu aka um Suðurlandsbraut.
Á þeim forsendum er starfsleyfið framlengt. [email protected]
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗