Leiðtogarnir gefa út „friðaryfirlýsingu“

Pútín, Xi og Trump við upphaf fundarins í morgun.

Pútín, Xi og Trump við upphaf fundarins í morgun. AFP/Win MnNamee

Donald Trump Bandaríkjaforseti, Xi Jinping, forseti Kína, og Vladimír Pútín Rússlandsforseti hafa gefið út „friðaryfirlýsingu” í kjölfar leiðtogafundar þeirra í Shenzhen í suðurhluta Kína í morgun.

Í yfirlýsingunni segir að leiðtogarnir þrír séu staðráðnir í að viðhalda hernaðarlegum stöðugleika og alþjóðlegu öryggi.

Þar kemur einnig fram að þeir hafi rætt orkuöryggi og hyggist auka framleiðslu og framboð á hreinsuðum olíuvörum, að því er BBC greindi frá.

Friðhelgi embættismanna ríkja var einnig til umræðu. Í yfirlýsingunni segir: „Þeir voru sammála um að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn og aðrar sambærilegar stofnanir mættu ekki misnota lögsögu sína.“

Hvað kjarnorkumál varðar voru leiðtogarnir þrír sammála um að „kjarnorkustríð sé ekki hægt að vinna og það megi aldrei heyja“ og að viðræður stæðu yfir um að koma í veg fyrir útbreiðslu kjarnavopna.

Leiðtogarnir þrír á leiðinni á fundinn.

Leiðtogarnir þrír á leiðinni á fundinn. AFP/Vyacheslav Prokofyev

Í yfirlýsingunni kemur einnig fram að Kína, Rússland og Bandaríkin séu „staðráðin í að vinna að umbótum á Sameinuðu þjóðunum svo að stofnunin geti tekist á við hnattrænar áskoranir með skilvirkari hætti og sinnt grundvallarhlutverki sínu, að viðhalda friði og öryggi í heiminum“.

Ánægður með fundinn

Xi Jinping segir fundinn hafa „jákvæðan, uppbyggilegan og árangursríkan“, að sögn kínverskra ríkisfjölmiðla.

AFP/Vyacheslav Prokofyev

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab