Opið samtal um íslensku í Iðnó í dag
Pálmi Hafþór Ingólfsson fræðslustjóri Brims og Jón Gunnar Þórðarson framkvæmdastjóri Bara tala. Ljósmynd/Bara tala
Menntatæknifyrirtækið Bara tala og útgerðarfélagið Brim í samstarfi við Gefum íslensku séns halda utan um opið samtal um stöðu og framtíð íslenskunnar í Iðnó síðdegis í dag.
Viðburðurinn stendur frá hálf fimm til hálf sjö, en á honum ræða meðal annars Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Pálmi Hafþór Ingólfsson fræðslustjóri Brims um stöðu og framtíð íslenskunnar.
Á meðal annarra þátttakenda eru svo Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Ásta Sigríður Fjeldsted forstjóri Festi, Peter Weiss stjórnarformaður Gefum íslenskunni séns og Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims.
Fram kemur í tilkynningu um viðburðinn að í dag læri fólk íslensku með Bara tala hjá 200 fyrirtækjum og 20 sveitarfélögum hér á landi.
Í þeim hópi er Brim, sem í áraraðir hefur staðið fyrir íslenskukennslu fyrir starfsfólk sem ekki hefur íslensku að móðurmáli.
Í brennidepli á viðburðinum er spurningin: Hvernig sköpum við samfélag þar sem fólk með annað móðurmál fær raunveruleg tækifæri til að læra íslensku og nota hana í daglegu lífi?
Dagskráin er eftirfarandi:
- Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Pálmi Hafþór Ingólfsson fræðslustjóri Brims ræða stöðu og framtíð íslenskunnar.
- Valerio Gargiulo, rithöfundur og þýðandi, flytur stutt erindi sem byggir á grein hans „Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku?“.
- Helga Fjóla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Hornsteins, fjallar um íslenskukennslu á karllægum vinnustað.
- Pallborðsumræður þar sem Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi, Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og Peter Weiss, stjórnarformaður Gefum íslensku séns, ræða málið. Umræðum stýrir Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá Samtökum iðnaðarins.
- Jökull Júlíusson úr KALEO tekur lagið með Doctor Victori.
Húsið verður opnað klukkan hálf fimm og dagskrá hefst korteri síðar. Í tilkynningu eru gestir hvattir til að mæta tímanlega en hægt er að skrá sig á viðburðinn HÉR.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
