Valtýr var einn heima og trúði ekki því sem fyrir augu hans bar - „Ég sagði þetta upphátt“

Fjölmiðlamaðurinn Valtýr Björn Valtýsson og spekingurinn Þórhallur Dan Jóhannsson telja þjálfara íslenska U-21 árs landsliðsins hafa gert mistök í umspilinu um sæti á EM næsta sumar.

Ísland tapaði á grátlegan hátt í vítaspyrnukeppni gegn Grikkjum. Það er óhætt að segja að íslenska liðið hafi verið betra í þessu tveggja leikja einvígi. Leiknum hér heima lauk 1-1 í síðustu viku og það sama var uppi á tengingnum í Grikklandi í þessari viku.

„Mér fannst þessi leikur tapast á taktíkinni, þegar það var skipt inn á,“ sagði Þórhallur. Um miðjan seinni hálfleikinn voru Amin Cosic og Freyr Sigursðson teknir af velli og skömmu síðar Benoný Breki Andrésson.

„Ég var einn að horfa, sem betur fer, og sagði bara: „Hvað eruði að gera? Af hverju eruð þið að skipta strax?“ Ég sagði þetta upphátt því þetta var ekki tímabært, við vorum með þá,“ sagði Valtýr.

„Rétt áður en þeir taka Amin út af var hann næstum dottinn í gegn og búinn að skora,“ sagði Þórhallur. „Mér fannst við gera rangt taktíkst, þar liggi mistökin. Það mega allir vera ósammála mér í því. Ég hefði hangið á liðinu sem byrjaði lengur.“

Það er allavega ljóst að íslenska U-21 árs landsliðið verður ekki á EM á næsta ári. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab