Kossar sagðir aðeins hluti af sögunni

Ekki hefur náðst í stjórnendur Hagaskóla við gerð þessarar fréttar.

Ekki hefur náðst í stjórnendur Hagaskóla við gerð þessarar fréttar. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Meint kossaflens starfsmanna Hagaskóla í Reykjavík er sagt hafa verið öllu holdlegra en kom fram í bréfi sem stjórnendur skólans sendu forráðamönnum barna í skólanum í gær. 

Í bréfinu sem starfandi skólastjóri sendi segir að tveir starfsmenn skólans hafi sést kyssast í skólanum.

Samkvæmt heimildum mbl.is gengur myndefni af meintum ástarlotum starfsmannanna á milli nemenda skólans.

Starfsfólk sýnilegt á göngum skólans

Starfsmennirnir eru sagðir hafa stundað kynlíf innan veggja skólans, þar sem nemendur hefðu getað orðið vitni að athæfinu.

Í bréfinu sagði að rætt hefði verið við hlutaðeigandi aðila og að málið væri til skoðunar í samráði við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs. 

Enn fremur segir að lögð hafi verið áhersla á að starfsfólk skólans væri sýnilegt á göngum skólans svo nemendur gætu leitað til þess hefðu þeir spurningar eða vildu ræða málið.

Ekki hefur náðst í stjórnendur Hagaskóla við gerð þessarar fréttar.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab