Verður einn sá launahæsti hjá Arsenal

Declan Rice.

Declan Rice. AFP/Ben Stansall

Enski knattspyrnumaðurinn Declan Rice er að skrifa undir nýjan samning við Englandsmeistara Arsenal.

Það er Sportsmail sem greinir frá þessu en Rice, sem er 27 ára gamall, mun skrifa undir nýjan fimm ára samning í Lundúnum.

Sportsmail greinir frá því að Rice muni þéna í kringum 350.000 pund á viku en það samsvarar um 57,5 milljónum íslenskra króna á viku.

Hann verður einn launahæsti leikmaður félagsins ásamt enska sóknarmanninum Bukayo Saka sem þénar einnig um 350.000 pund á viku.

Rice gekk til liðs við Arsenal frá West Ham sumarið 2023 fyrir 105 milljónir punda og á að baki 173 leiki fyrir félagið þar sem hann hefur skorað 22 mörk og lagt upp önnur 36.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab