Þurfti að undirrita stafla af trúnaðarsamningum til að leika Luciu í GTA VI
Fókus
Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 10:53
Manni L. Pérez og persónan Lucia Caminos sem hún leikur í GTA VI. Samsett mynd/Instagram
Leikkonan Manni L. Pérez þurfti að skrifa undir stefla af „ógnvekjandi“ trúnaðarsamningum áður en hún fékk hlutverkið sem Lucia í stórleiknum GTA VI sem kom út í nótt. Lucia er önnur af tveimur persónunum sem leikmenn spila, leikurinn hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og má því segja að rödd Pérez verði ódauðleg í tölvuleikjasögunni.
Liðin eru tvö ár síðan fyrsta stiklan úr leiknum kom út og hefur verið nokkur dulúð um hverjir fara með aðalhlutverkin. Latin Times greinir frá því að auk þess að undirrita staflann hafi Pérez fengið harðar viðvaranir um afleiðingarnar ef hún léti upplýsingar um leikinn leka.
Frammistaða Pérez hefur þegar skilað henni tilnefningu til Game Awards-verðlaunanna fyrir besta leik í tölvuleik.
Pérez, sem er 34 ára, er fædd og uppalin í New York og á ættir að rekja til Púertó Ríkó. Hún hefur komið víða við á ferli sínum og meðal annars leikið í sjónvarpsþáttunum Blindspot, The Blacklist, Jessica Jones og Chicago P.D.
Hennar þekktasta hlutverk hennar var í þáttunum Lög & Regla: Sérglæpasveitin, Law & Order: Special Victims Unit, þar sem hún lék hnefaleikakonuna Esperanzu Morales en fyrir þá frammistöðu hlaut hún Imagen-verðlaun árið 2020.
Pérez stundar einnig lyftingar og hefur áður sagt um hlutverkið að hún hafi „í rauninni bara leikið sjálfa mig, en aðeins rólegri útgáfu“.
Áður en hún fékk sitt fyrsta hlutverk starfaði hún sem þjónustustúlka í Brooklyn.
Hún var 23 ára þegar hún fékk sitt fyrsta leiklistarhlutverk í gamanþáttaröðinni Utilities Not Included, sem sýnd var á netinu.
Pérez hefur einnig áður lýst því að það sé í sérstöku uppáhaldi hjá henni að vinna með hreyfiföngunartækn, þar sem hreyfingar leikara eru skráðar stafrænt og notaðar til að lífga við tölvugerðar persónur.
„Þetta er algjörlega uppáhaldið mitt. Ég þarf ekkert að hafa áhyggjur af því hvernig ég lít út, hárinu á mér eða förðuninni,“ sagði hún.
Áður en Pérez tók að sér hlutverk Lucíu í GTA VI hafði hún komið við sögu í leikjaseríunni sem starfsmaður í spilavíti í GTA V og GTA Online.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗