Þrjú stórlið vilja Scott - Neitar að skrifa undir

Arsenal er tilbúið að selja miðjumenn til að fjármagna kaup á Alex Scott, leikmanni Bournemouth. The Sun segir frá þessu.

Bournemouth vill fá allt að 100 milljónir punda fyrir Scott en, leikmaðurinn er ekki til í að framlengja samning sinn sem gildir til 2028. Gæti um 80 milljóna punda tilboð dugað í janúar eða næsta sumar.

Arsenal ku vera opið fyrir því að selja Mikel Merino og Martin Zubimendi til að fjármagna kaupin, en þeir eru í minni hlutverkum á Emirates.

Sky Sport segir þá að Chelsea og Liverpool hafi einnig áhuga á Scott, en hjá síðarnefnda félaginu myndi kappinn sameinast fyrrum stjóra sínum hjá Bournemouth, Andoni Iraola.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab