Andlát: Hjalti Þorkelsson
Séra Hjalti Þorkelsson, prestur í Kaþólsku kirkjunni og fyrrverandi skólastjóri Landakotsskóla, er látinn 82 ára að aldri.
Hjalti andaðist á sjúkrahúsinu á Akranesi 17. nóvember. Greint er frá andláti hans á vef Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi.
Séra Hjalti fæddist í Hólmavík 21. desember 1943, sonur hjónanna Þorkels Hjaltasonar kennara og Sigríðar Tómasdóttur klæðskera.
Hann stundaði nám í Kennaraskóla Íslands, svo í Þýskalandi í Heidelberg þar sem hann kynntist Kaþólsku kirkjunni og tók kaþólska trú í munkaklaustrinu Neuburg. Hann fór í prestnám í Freiburg og Róm og tók prestvígslu 23. júlí 1983 í Dómkirkju Krists konungs í Landakoti.
Hann þjónaði í Landakoti til ársins 1988 samhliða kennarastörfum í Landakotsskóla, tók svo við embætti sóknarprests í Hafnarfirði og sá þar m.a. um byggingu St. Jósefskirkju á Jófríðarstöðum og hafði forgöngu við upphaf safnaðarstarfs á Suðurnesjum.
Frá 1998 til 2005 var hann skólastjóri Landakotsskóla. Hann tók við embætti sóknarprests á Akureyri þangað til að hann settist í helgan stein árið 2018 í Stykkishólmi og dvaldi þar til æviloka.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗