Íslenskur karlmaður lést í flugi á leiðinni heim frá Tenerife

Íslenskur karlmaður á níræðisaldri sem veiktist í flugi á leið frá Tenerife til Keflavíkur í gærkvöldi er látinn. Frá þessu greinir mbl.is.

Hjúkrunarfræðingur var um borð og hlúði að manninum ásamt áhöfn og vegna veikindanna var vélinni lent á Írlandi. Ekki liggur fyrir hvort maðurinn hafi komist undir læknishendur á Írlandi en ferðaskrifstofan Úrval Útsýn, sem skipulagði pakkaferðina, segist enn bíða eftir frekari upplýsingum um málið.

Farþegar og áhöfn vélarinnar þurftu að gista í bænum Shannon í nótt en flogið verður með alla heim til Íslands síðar í dag. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab