Íslendingur lést í flugi frá Tenerife

Innlent | mbl | 19.11.2026 | 10:21

Maðurinn var á níræðisaldri.

Maðurinn var á níræðisaldri. Ljósmynd/Colourbox

Íslenskur maður á níræðisaldri sem veiktist um borð flugvélar á leið frá Tenerife til Keflavíkur í gærkvöldi er látinn. 

Þetta staðfestir Tómas J. Gestsson, forstjóri Úrvals Útsýnar.

Ferðin var á vegum ferðaskrifstofunnar en vélin frá ítalska flugfélaginu Neos sem á í samstarfi við ýmsar ferðaskrifstofur hér á landi.

Hjúkrunarfræðingur um borð

Í erlendum fréttaflutningi er greint frá því að hjúkrunarfræðingur hafi verið um borð og hlúið að manninum ásamt áhöfn vélarinnar.

Ekki er vitað hvort tekist hafi að koma manninum undir læknishendur á Írlandi og segir Tómas ferðaskrifstofuna bíða eftir frekari upplýsingum um málið.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab