Kastljósið beinist senn að Kristrúnu

Bráðum kemur að því að kastljósið muni beinast að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og flokki hennar í ljósi þess að efnahagsmálin hafa færst til verri vegar undir stjórn ríkisstjórnarinnar og ekki er útlit fyrir að viðsnúningur sé í nánd. 

Þetta er mat Árna Helgasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. 

Þrátt fyrir erfiðleika bæði Viðreisnar og Flokks fólksins hefur fylgi Samfylkingarinnar hækkað mikið í könnunum frá því að kosið var í nóvember 2024. 

Ríkisstjórnin prímusmótor verðbólgunnar

Árni segir Kristrúnu hafa leikið sniðugan leik á kjörtímabilinu með því að draga sig í hlé þegar mestu skellirnir verða og með því að beita sér ekki um of í erfiðum málum, eins og þjóðaratkvæðagreiðslunni í haust.

Einnig telur Árni að mikið fylgi Samfylkingarinnar megi að einhverju leyti rekja til þess að vinstri vængurinn sé tættur og óvissa sé um framtíð Vinstri grænna, Pírata og Sósíalistaflokksins. Fylgið gæti því farið á flakk þegar kosningar nálgast og valkostirnir verða skýrari.

Ljóst sé þó að árangur ríkisstjórnarinnar hafi ekki verið fullnægjandi í efnahagsmálum. Því komi á óvart hve mikið traust kjósendur virðist bera til Kristrúnar og Samfylkingarinnar samkvæmt könnunum.

„Við höfum haft ágætis færi til þess að gera betur. Það hafa ekki verið stór ytri áföll eða eitthvað slíkt en það sem Seðlabankinn hefur bent á er að ríkisstjórnin hefur verið ákveðinn prímusmótor í því að knýja verðbólguna með opinberum gjaldahækkunum og eyðslu.

„Maður talar sig ekki í gegnum efnahagsvanda“

Nú í vetur hafa fréttir af gjaldþrotum og erfiðleikum í atvinnulífinu orðið tíðari. Árni telur þetta þó aðeins forsmekkinn að því sem koma skal.

„Ég held að þetta eigi eftir að verða töluvert erfiðara áður en þetta verður eitthvað betra. Ég gæti alveg trúað því að næsta ár verði okkur býsna erfitt og þungt. Ég er ekki alveg sannfærður um að viðsnúningurinn sé jafn nálægt okkur og við höldum.“

Kastljósið muni því senn beinast að Kristrúnu.

„Kastljósið hlýtur að fara beinast bráðlega að Kristrúnu hvað þetta varðar. Hún kemur vel fyrir og er góð í að tala um efnahagsmál en maður talar sig ekki í gegnum efnahagsvanda, maður þarf að ná tökum á honum og sýna árangur. Kjósendur hljóta að fara að spyrja sig að því hver raunveruleikinn er miðað við loforðin og væntingarnar sem okkur voru gefnar.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab