„Viljum skapa góða íslenska jólahefð“

Snorri Snorrason og Hlynur Axel Bjarkason, synir útgefendanna og eigenda Junior útgáfu, að horfa á „mock-up“ og raunstærð púslsins.

„Við höfum verið að gefa út spil alveg frá árinu 2021,“ segir Snorri Páll Þórðarson, einn af eigendum og hugmyndasmiðum fyrirtækisins Junior útgáfu. „Öll spilin okkar hafa verið einföld og þægileg og mörg hver eru þannig að hægt er að hafa þau með í veskinu,“ segir hann, en núna er von á aðeins öðruvísi spili, eða 1.000 bita áramótapúsli.

„Púsl ársins 2026 er hugmynd sem við fengum af því að við vissum að margir nota jólin til þess að púsla eða gera eitthvað saman með fjölskyldunni,“ segir Snorri. „Okkur datt þá í hug að hafa þetta svona eins og áramótaskaup í púsli og hafa einhverja skemmtilega skopmynd af helstu atburðum ársins og búa til púsl úr því,“ segir hann.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab