Sóknarmaður United spilaði GTA langt fram á nótt

Bryan Mbeumo.

Bryan Mbeumo. AFP/Piero Cruciatti

Kamerúnski knattspyrnumaðurinn Bryan Mbeumo er einn þeirra sem forpöntuðu tölvuleikinn GTA 6 sem kom út á dögunum.

Leikmaðurinn greindi sjálfur frá þessu á samfélagsmiðlinum Instagram en hann sótti tölvuleikinn á miðnætti í gær og spilaði langt fram á nótt.

Bresk stjórnvöld höfðu gert ráð fyrir því að allt upp í þrjár milljónir manns myndu hringja sig inn veika í dag vegna tölvuleikjarins sem hefur verið beðið eftir með mikilli eftirvæntingu í meira en áratug.

Argentínski knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino tók við stjórnartaumunum hjá United í vikunni en liðið undirbýr sig nú fyrir stórleik gegn Liverpool á Anfield í 11. umferð úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn kemur.

Óvíst er hvernig tölvuleikjaspilun Mbeumos mun fara í Pochettino en hann hefur skorað fjögur mörk í tíu leikjum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Ljósmynd/@mbeumo

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab