Haltu mér, slepptu mér og allt það
Vikan var viðburðarrík á Smartlandi. Marta María Winkel, fréttastjóri dægurmála mbl.is og höfundur Smartlands Mörtu Maríu, fór yfir fréttir vikunnar og tók saman allt það helsta.
Slógu upp tískusýningu
Undirfataverslunin Sassy kann að halda teiti en það sannaðist á dögunum þegar boðið var upp á drykki, tískusýningu og mikið stuð!
Hvað gerist ef sumarhús á Spáni er selt?
Eymundur Sveinn Einarsson endurskoðandi hefur ekki undan að svara spurningum um skattamál. Lesandi vildi fá að vita hvað bæturnar myndu skerðast ef sumarhús á Spáni yrði selt. Eymundur var að sjálfsögðu með rétt svar á reiðum höndum.
Eymundir Sveinn Einarsson endurskoðandi hjá Endurskoðun og ráðgjöf svarar spurningum lesenda Smartlands.
Linda B sagði frá
„Ég var í þessu sambandi, haltu mér, slepptu mér, í tólf ár. Um fimm árum áður en ég gekk endanlega út úr því var ég farin að vita að þetta væri ekki æðislegt og mér leið ekki vel. Hann tók frá mér gleðina og í rauninni umgengni við barnabörnin mín og þá sem voru í kringum mig, sem var mjög sárt á þeim tímapunkti.“
Saumaði sinn eigin brúðarkjól
Rán Ísold Eysteinsdóttir, viðmótshönnuður og ein af eigendum Noona-appsins, gekk að eiga Kjartan Þórisson, framkvæmdastjóra og stofnanda Noona, þann 20. júní síðastliðinn. Brúðkaupið fór fram í Skógargerði á Austurlandi, rétt utan við Fellabæ, en staðurinn á sér sérstaka sögu í fjölskyldu Ránar. Langamma hennar ólst þar upp og foreldrar hennar gengu einnig í hjónaband á sama stað. Rán giftist ástinni í kjól sem hún saumaði sjálf.
Dreymir þig um að búa í Sigvaldablokk?
Dr. Maríanna Garðarsdóttir setti íbúð sína við Skaftahlíð á sölu. Ef þú vilt búa á besta stað í fögru umhverfi þá er þessi íbúð að bíða eftir þér.
Getur slæmt netsamband haft áhrif á hjónabandið?
Góða helgi!
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


