„Neikvæðni er bönnuð í No Birdies“

Léttleiki, gleði og húmor eru í fyrirrúmi hjá golfhópnum No Birdies. Ljósmynd/Aðsend

Fáir toppa Guðríði Jónsdóttur, eða Gurrý eins og hún er oftast kölluð, þegar kemur að stemningu og skemmtilegheitum. Gurrý er tveggja barna móðir og býr, að eigin sögn, í Beverly Hills Kópavogi. Hún er snyrtifræðingur að mennt og heldur jafnframt úti hlaðvarpinu Spjallinu ásamt vinkonum sínum Sólrúnu Diego og Línu Birgittu Sigurðardóttur. Gurrý er einnig hluti af hressasta golfhópi landsins, No Birdies, þar sem neikvæðni og fýla eru einfaldlega bönnuð.

Segðu mér aðeins frá golfhópnum No Birdies. Hvernig kom hann til?

„No Birdies er virtasti golfhópur landsins, skipaður stemningskonum sem eiga það sameiginlegt að elska kampavín, sól og golf. Hópurinn var stofnaður í janúar 2022 af vinkonu minni, Önnu Sóleyju Birgisdóttur. Hún var þá nýbyrjuð í golfi og átti fáar vinkonur sem stunduðu íþróttina. Hún ákvað því að safna saman nokkrum hressum gellum sem voru nýbyrjaðar að slá og spurði hvort þær vildu vera hluti af skemmtilegasta golfhópi landsins. Þannig fór boltinn af stað.“

Aðspurð segir hún hópinn alltaf opinn fyrir nýliðum, þó staðan sé sú að einfaldlega sé ekkert pláss fyrir fleiri meðlimi eins og er.

„Það hrannast inn beiðnir úr öllum áttum um að fá að vera partur af hópnum. En engin okkar er að fara að gefa upp sætið sitt, þannig að það er erfitt að taka inn nýja meðlimi. Það væri þá helst ef einhver tæki upp á því að verða leiðinleg og hætta að elska golf, þá yrði sú manneskja auðvitað rekin. Fólk þarf því að vera á tánum. Í dag erum við 25 vel hressar konur á aldrinum 25–45 ára og höfum aldrei verið betri. Við höngum í golfhermunum yfir veturinn, höldum reglulega golfmót og förum saman í ferðir, bæði innanlands og utan.“

No Birdies hafa ferðast víða hérlendis en einnig erlendis, nánar tiltekið til Tyrklands og Portúgal.

Aldrei er dauð stund þegar No Birdies kemur saman.

Aldrei er dauð stund þegar No Birdies kemur saman. Ljósmynd/Aðsend

Hverjar eru draumaferðir No Birdies?

„Það er aldrei leiðinlegt að kíkja til Vestmannaeyja. Golfvöllurinn þar er einstaklega huggulegur, þá sérstaklega við góðar veðuraðstæður. Það toppa þó sennilega fáir staðir Belek-svæðið í Tyrklandi. Þangað fórum við í október 2025. Þar eru frábærir vellir og umgjörðin þar er rosaleg. Marta, okkar besta hjá Eagle Golf, er einmitt að smíða næsta áfangastað fyrir hópinn. Sá staður verður líklegast Marbella á Spáni.“

Hvernig er að tilheyra svona stórum hópi ungra kvenna sem deila sama áhugamáli?

„Það eru hreint út sagt forréttindi. Það er ekki til sú upphæð sem ég myndi taka til að gefa eftir sætið mitt í þessum virta golfhópi. Þetta er það skemmtilegur hópur að þegar slæmu hringirnir koma þá gleymist það á nokkrum sekúndum. Það er svo alltaf einhver í hópnum til í að fara út á völl sama hvenær sólarhringsins maður hóar í stelpurnar, það er ómetanlegt.

Það sem einkennir þennan golfhóp er léttleiki, gleði, húmor og gellustælar. Það er ótrúlegt að í svona stórum hópi sé ekki einn einstaklingur leiðinlegur. Það er eiginlega rannsóknarefni en við kvörtum eðlilega ekki yfir því. Við lítum svolítið á golfið sem skemmtun. Það er ekkert skemmtilegra en að stilla sér upp á teig og ná rosalegu drævi. Allir sem hafa prófað það þekkja þá mögnuðu tilfinningu. Þrátt fyrir að þetta sé stemningshópur er mikið keppnisskap í stelpunum. Það er ótrúlega gaman að sjá hvað þær eru allar að bæta sig á methraða. Ekki er ólíklegt að þessi hópur eigi eftir að raka inn titlum erlendis í framtíðinni.“

Kristín Ruth Jónsdóttir og Gurrý Jónsdóttir eru ávallt kátar á golfvellinum. Ljósmynd/Aðsend

Manstu eftir einhverju sérstaklega skemmtilegu atviki sem hefur komið upp á golfvellinum?

„Sem betur fer gerast reglulega skemmtilegir hlutir þegar svona frábær hópur kemur saman, bæði úti á golfvelli og í golfskálanum. Hins vegar eiga ekki allar sögurnar erindi í blaðið. Golfkerrur hafa óvart endað ofan í skurði, köngulær truflað mikilvæg högg og kylfur flogið út um víðan völl. Svo vorum við líka aðeins nokkrum metrum frá því að fá eldingu í okkur í Tyrklandi. Það hefði verið frekar þreytt.“

Gurrý rifjar upp sérstaklega eftirminnilegt atvik úr ferð hópsins til Portúgals árið 2024, þegar stelpurnar spiluðu Penha Longa Atlântico-völlinn.

„Það var mikill gróður í kringum brautirnar og stór skógur umlukti völlinn. Eins og gengur og gerist lenda golfkúlur stundum inni í slíku kjarri. Ein úr hópnum fór að leita að kúlunni sinni og kom svo loksins út úr skóginum með könguló á stærð við gíraffa límda á bakinu. Öskrin og lætin hafa líklega heyrst alla leið til Spánar. Það var hlegið lengi og vel eftir þessar hremmingar,“ segir Gurrý og hlær.

Nú er mikið lagt upp úr klæðaburði á golfvöllum, hugsið þið um tískuna á vellinum?

„Fyrir golfara með háa forgjöf er fátt mikilvægara en að vera vel tilhafður á golfvellinum. Eiginlega mikilvægara en skorið í rauninni. Það er ekkert verra en að sjá einstakling sem klæðist ekki tilteknum golfklæðnaði og er eins og niðursetningur úti á velli. Um daginn þegar ég vaknaði rak ég augun í mynd af frænda mínum, Ásgeiri Kolbeinssyni, í gallabuxum úti á golfvelli. Mér svoleiðis svelgdist á kaffibollanum við að sjá það. Gjörsamlega til háborinnar skammar. Kolb, eins og hann er oft kallaður, er ekki að fara að komast inn í No Birdies á næstunni, því miður!“

Eruð þið mikið að peppa hver aðra á vellinum og gefa ráð varðandi tæknina?

„Já, öllum stundum. Neikvæðni er bönnuð í No Birdies. Við fögnum góðu höggunum og veitum andlegan stuðning eftir þau slæmu. H-vítamínið er mikilvægasta vítamínið í golfferðunum. Að gefa öðrum ráð varðandi tækni og annað er vandmeðfarið. Það er fínt að fá ábendingar annað slagið. Það er þó ekkert þreyttara en of mikið af óumbeðnum ráðum.“

Gurrý er algjör peppari og flækti það ekki fyrir sér þegar hún var beðin um að sannfæra þá sem ekki hafa spilað golf um að gefa íþróttinni séns.

„Ég á tvær vinkonur sem golfa ekki og ég er eins og biluð plata við þær báðar hvað þetta varðar. Ég segi þeim viðstöðulaust hverju þær eru að missa af. Ef ég ætti að koma með söluræðu á einstakling sem hefur aldrei spilað golf myndi ég einfaldlega segja: Þú veist ekki hverju þú ert að missa af. Rífðu þig í gang. Því fyrr, því betra!“

Að lokum segir hún hópinn hafa gefið sér góðar stundir, hlátursköst og endalaust af skemmtilegum augnablikum.

„Ekki hefði mig grunað hvað hópurinn yrði samheldinn og skemmtilegur og já, það er til lag um okkur. Ekki hafa áhyggjur af því.“

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅