Manstu þegar Þóra ætlaði að kaupa sér mann?

Þóra Hallgrímsdóttir lögfræðingur kom í viðtal árið 2012 og sagði frá því að hún myndi kaupa sér mann ef hún ætti milljón. Hún er hamingjusamlega gift núna. Ljósmynd/Aðsend

Smartland varð 15 ára 5. maí. Af því tilefni hefur ritstjórn Smartlands tekið sig saman og tínt til gullmola síðustu 15 ára. Á þessum tímamótum er fjör að rifja upp allt þetta skemmtilega, fyndna og dusta rykið af öllu því sem við vorum öll löngu búin að gleyma.

Þóra Hallgrímsdóttir lögfræðingur sagði frá því í viðtali á Smartlandi árið 2012 að hún eyddi allt of miklum peningum á kaffihúsum, börum og á veitingastöðum. Þóra var einhleyp á þessum tíma en hún er gengin út og harðgift núna.

Í hvaða vitleysu eyðir þú peningum?

„Greiningardeild hins stórgóða þjónustufyrirtækis Meniga segir mér að ég eyði of miklu á veitingastöðum, kaffihúsum og börum. Ég segi þeim á móti að það sé skilgreiningaratriði.“

Bestu kaupin?

„Listaverk eftir Birgi Andrésson heitinn rétt áður en hann féll frá.“

Verstu kaupin?

„Samansafn af öllum fötunum sem keypt hafa verið korter í einhvern tímamótaviðburð og eru enn í fataskápnum ónotuð.“

Ef þú ættir milljón á lausu, hvað myndir þú kaupa?

„Þrátt fyrir bann við mansali myndi ég sennilega kaupa mér mann. Þá meina ég auðvitað jafnt karlmann sem kvenmann sem mundi nota peningana skynsamlega í samráði við áhyggjufullan föður minn til að dytta að ýmsu heima hjá mér og borga inn á skuldir. Fyrir skilgreindan afgang færi ég síðan til útlanda í þeim tilgangi að spara ekki meðvitað.“

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅