„Ég er pínu villtur golfari“

Gunnar Nelson.

Gunnar Nelson. Ljósmynd/Sigga Ella

„Ég ligg bara uppi í sófa og er að fylgjast með The Open,“ segir Gunnar Nelson yfirvegaðri röddu þegar blaðamaður slær á þráðinn til hans norður á land. Fyrir þá sem ekki vita er The Open eitt elsta og virtasta golfmót heims og dregur ár hvert að sér milljónir áhorfenda víðs vegar að úr heiminum.

Það kemur ef til vill mörgum á óvart að einn fremsti bardagamaður Íslands verji stórum hluta frítíma síns í golf, bæði fyrir framan sjónvarpið og eins úti á golfvellinum. En fyrir Gunnar hefur golfið á örfáum árum orðið meira en áhugamál. Þar finnur hann bæði áskorun, ró og útrás sem er ólík þeirri sem hann þekkir úr bardagabúrinu, þótt hann segi að íþróttagreinarnar tvær eigi ýmislegt sameiginlegt.

Áður en við fáum að heyra hvað það var við golfið sem heillaði Gunnar, hvað íþróttin hefur kennt honum og gefið, og hvers konar kylfingur hann er, skulum við líta aðeins um öxl og rifja upp hvernig íþróttaferill hans hófst og hvað varð til þess að hann leiddist inn í heim MMA.

„Ég er fæddur á Akureyri en ólst upp í Reykjavík, nánar tiltekið í Laugardalnum, að mestu leyti. Þegar ég var gutti byrjaði ég að æfa hokkí og iðkaði það í einhver fjögur ár, að mig minnir. Síðan færði ég mig yfir í karate þegar ég var 14 ára gamall og æfði það af fullum krafti í þrjú ár. Ég komst í landsliðið í kumite og þar kynntist ég Jóni Viðari Arnþórssyni og fleiri máttarstólpum innan MMA-samfélagsins. Þá fór ég á fullt í MMA, byrjaði 17 ára og fagnaði 38 ára afmæli mínu þann 28. júlí. Þetta eru því orðin rúm 20 ár í bransanum, ótrúlegt en satt.“

Og þá að golfinu.

Gunnar Nelson er þekktur bardagamaður.

Gunnar Nelson er þekktur bardagamaður. Ljósmynd/Snorri Björns

Áhuginn var lítill í byrjun

Golfið á sér ekki langa sögu í lífi Gunnars. Þetta er fjórða sumarið sem hann eyðir drjúgum tíma á golfvellinum. Hann segist eiga áhugann félögum sínum að þakka og viðurkennir jafnframt að hafa verið lítt spenntur til að byrja með.

„Félagi minn, Arnar Snær Hákonarson, dró mig út í þetta, ásamt fleirum. Arnar var búinn að reyna lengi að fá mig með sér á golfvöllinn, en ég var alltaf eitthvað hikandi og nennti þessu eiginlega ekki. Svo einn daginn ákvað ég að gefa þessu séns og við fórum að spila. Þá kolféll ég fyrir golfinu, það gerðist ótrúlega hratt. Þetta var um mitt sumar, eða réttara sagt seint í júlí. Mig minnir meira að segja að það hafi verið á afmælisdaginn minn. Veturinn á eftir byrjaði Arnar síðan að kenna mér almennilega að slá.“

Aðspurður hvað hafi heillað hann við golfið segir Gunnar að íþróttin sé krefjandi og ólík öllum öðrum íþróttum sem hann hafi stundað.

„Þetta er náttúrlega rosalega erfitt sport, alveg með því erfiðasta sem ég hef stundað; allt öðruvísi en öll önnur hobbí sem ég hef prófað. Ég var um tíma á torfæruhjólum, vélsleðum og ýmsu fleiru, enda hef ég alltaf verið mikið fyrir adrenalíníþróttir og hasar. En golfið náði mér á allt annan hátt. Það er svo tæknilegt og þeir sem spila golf þekkja þessa einstöku tilfinningu þegar maður slær nákvæmlega það högg sem maður ætlaði sér að slá. Og eftir því sem ég verð eldri hef ég líka meira gaman af rólegheitum og samveru með vinum og fjölskyldu. Það er notalegt að ganga golfhring í afslöppuðu andrúmslofti í fjóra tíma í góðu veðri, sem er ekki sjálfgefið hér á landi. Þá toppar fátt það að vera á golfvellinum.“ Eina eftirsjáin í dag, að sögn Gunnars, er að hafa ekki byrjað fyrr. „Ég hefði helst átt að byrja sem krakki. Þeir sem læra að slá ungir búa að því.“

Hvernig er sveiflan þín í dag?

„Hún er bara mjög fín. Ég hef fundið fyrir miklum framförum, en þetta kemur og fer. Maður er alltaf að reyna að bæta eitthvað og laga, en um leið og maður leggur áherslu á einn þátt virðist eitthvað annað fara úr skorðum. Þá þarf maður einhvern veginn að finna það aftur. Þetta er eilífðarverkefni, mjög ergilegt en um leið rosalega gaman.“

„Andlegi þátturinn er mjög svipaður“

Golf og MMA eru ólíkar íþróttir í flestu tilliti. Blaðamaður gat því ekki annað en forvitnast um hvort Gunnar sæi einhver líkindi á milli þeirra, til dæmis þegar kæmi að einbeitingu, aga, hugarfari og líkamsbeitingu.

„Já, algjörlega. Flestar íþróttir eiga það sameiginlegt að maður þarf að halda haus þegar illa gengur og missa ekki stjórn á sér þegar á reynir. Það sama á við um einbeitinguna. Í bardaga keppir maður í 15 til 25 mínútur, en á golfvellinum þarf maður að halda fókus í fjóra til fimm tíma. Það er allt öðruvísi áskorun, en andlegi þátturinn er mjög svipaður.“

Að sögn Gunnars er golf ein erfiðasta íþrótt sem hann hefur stundað þar sem hún er afar tæknileg og krefst mikillar einbeitingar og þolinmæði. Ljósmyndir/Sigga Ella

Bardagaíþróttirnar hafa greinilega kennt þér ýmislegt sem þú hefur getað nýtt þér á golfvellinum. En hefur golfið sömuleiðis kennt þér eitthvað sem þú hefur getað nýtt þér í bardagabúrinu?

„Þetta er allt einhvern veginn náskylt, ekki bara íþróttirnar heldur líka lífið sjálft. Maður getur alltaf tekið eitthvað með sér úr einum aðstæðum yfir í aðrar. Ef hugarfarið er rétt og maður er meðvitaður um það styður þetta allt hvað annað. Svo er golfið líka frábær leið til að slökkva aðeins á huganum, skipta um gír og hlaða batteríin. Fyrir mig er það ákveðin virk endurheimt að fara út að spila golf.“

Þrátt fyrir að vera mikill keppnismaður segir Gunnar að golfið veki ekki sömu keppnisþörf hjá sér og bardagaíþróttirnar.

„Í eðli mínu er ég mikill keppnismaður en ég upplifi ekki sömu þörf til að sigra þegar ég spila golf, þótt mig langi að sjálfsögðu til að spila vel. Tilfinningin þegar ég stíg út á golfvöll er ekkert í líkingu við það þegar ég er að fara inn í bardagabúrið. Ég stunda golfið fyrst og fremst mér til gamans og þótt ég hafi metnað fyrir því að slá vel og verða betri hefur það allt annað hlutverk í lífi mínu en bardagarnir.“

Hvernig myndirðu lýsa þér sem golfara?

„Ég er pínu villtur golfari,“ segir Gunnar og hlær. „Ég slæ frekar langt og þegar mér tekst að halda boltanum í leik á ég alveg möguleika á að skora vel. En ég get líka verið rosalega skakkur og slegið í allar áttir. Þegar ég er hins vegar að hitta vel get ég slegið virkilega góð högg, bæði af teig og með wedginu. Veikasti hlekkurinn hjá mér er örugglega púttið og það stafar líklega helst af því að ég hef aldrei æft mig almennilega í að pútta. Mér finnst gaman að pútta þegar ég er að spila, en ég nenni ekki að standa á æfingaflötinni í 40 mínútur og æfa pútt. Það finnst mér bara frekar leiðinlegt.“

„Það er verið að reyna að koma öllum í þetta“

Aðspurður hvað honum þyki skemmtilegast við golfið segir Gunnar erfitt að gera upp á milli, enda sé það samspil alls sem heilli mest. Ef hann þurfi þó að nefna eitt séu það golfferðirnar, ekki síst vegna félagsskaparins.

„Mér finnst rosalega gaman að fara í golfferðir, hvort sem það er innanlands eða erlendis. Það er skemmtilegt að vera í hópi fólks sem hefur metnað fyrir golfinu og nýtur þess einfaldlega að spila. Svo myndast alltaf einhver skemmtileg keppni og maður setur upp einhverja leiki. En það sem stendur kannski upp úr er samveran. Ég hef aldrei verið mikið fyrir að fara til útlanda í einhverjar fyllerís- eða djammferðir þar sem maður gerir í rauninni ekki neitt. Golfferðir höfða miklu meira til mín.“

Gunnar segir það gleðja sig mikið að áhuginn á golfinu sé farinn að smitast inn á heimilið. Sambýliskona hans, Fransiska Björk Hinriksdóttir, sé byrjuð að æfa golf og elsti sonur hans hafi einnig tekið fyrstu skrefin í íþróttinni.

„Elsti strákurinn minn hefur spilað með mér af og til í nokkur sumur og farið á námskeið. Svo er konan mín líka að byrja, hún er búin að vera hjá þjálfara og á æfingum. Það er verið að reyna að koma öllum í þetta.“

Þegar Gunnar er spurður hvort það sé ekki gaman að eiga sameiginlegt áhugamál með fjölskyldunni hlær hann og svarar:

„Jú, jú, ekki spurning. Þetta er bara fjárfesting.“

Spennandi að fylgjast með einhverjum spila sinn besta hring

Eins og áður kom fram voru það vinir Gunnars sem kynntu honum golf. Aðspurður hvað geri golfhring að eftirminnilegri upplifun segir hann að félagsskapurinn og stemningin í hollinu skipti ekki síður máli en eigin árangur.

„Það er auðvitað alltaf gaman þegar maður spilar vel sjálfur, en mér finnst alveg jafn gaman þegar einhver annar í hollinu er að spila rosalega vel. Þá myndast ákveðin spenna, sérstaklega ef maður sér að viðkomandi gæti verið á leiðinni að spila sinn besta hring. Svo eru það þessi litlu augnablik þegar einhver slær geðveikt högg og allir hlæja og hafa gaman. Það er stór hluti af því sem gerir golfið svona skemmtilegt.“

Golfið býður upp á ótal skondin og eftirminnileg augnablik. Gunnar var beðinn um að rifja upp eitt sem stendur sérstaklega upp úr.

„Það eru náttúrlega endalausar sögur af svona höggum sem fara úrskeiðis. Ég man til dæmis eftir einu höggi þar sem ég ætlaði að vera voðalega klár og reyna að slá bolta sem var hálfur ofan í mýri. Ég var með um 20 í forgjöf en hélt samt að ég gæti tekið þetta högg. Boltinn fór auðvitað ekki neitt en ég sló mýrina beint framan í mig. Það er alveg ótrúlegt hvað maður á til að ofmeta eigin getu!“

Gunnar nýtir hvert tækifæri til að komast á golfvöllinn yfir sumarið. Ljósmynd/Sigga Ella

„Fyrsta mótið gekk ekki vel“

Gunnar hefur tekið þátt í fjölda skemmtimóta og tvívegis keppt á meistaramóti Golfklúbbs Reykjavíkur, þar sem hann er félagsmaður. Hann er einnig í Golfklúbbi Fjallabyggðar í Ólafsfirði og segir reynsluna af keppni hafa kennt sér mikið, þótt fyrsta meistaramótið hafi reynst honum krefjandi.

„Fyrsta mótið gekk ekki vel. Það byrjaði reyndar ágætlega en síðan brast á rosalegur vindur og rigning. Þá kom reynsluleysið í ljós og ég átti erfitt með að halda boltanum í leik. Í seinna mótinu setti ég mér það markmið að vera í topp tuttugu og náði því. Maður lærir líka rosalega mikið af því að keppa. Þá fylgir maður öllum reglum, hugsar meira um leikskipulagið og reynir að spila skynsamlega.“

Þar sem Gunnar sat fyrir framan sjónvarpið og fylgdist með The Open var ekki úr vegi að spyrja hver væri uppáhaldskylfingurinn hans og með hverjum hann myndi helst vilja spila golfhring.

„Það er alltaf gaman að fylgjast með þeim bestu og reyna að læra af þeim. Ég held mikið upp á Justin Rose. Svo finnst mér líka gaman að fylgjast með Jon Rahm, Scottie Scheffler og Min Woo Lee.“

Aðspurður hver yrði fyrir valinu ef hann mætti velja sér meðspilara úr hópi allra kylfinga, eða raunar allra íþróttamanna, þarf Gunnar ekki að hugsa sig lengi um.

„Justin Rose og svo Michael Jordan.“

„Ekki tilbúinn að hætta strax“

Í lokin var Gunnar spurður hvort hann sæi fyrir sér að golfið tæki enn meira pláss í lífi hans þegar keppnisferli hans í MMA lyki. Hann segist ekki efast um að golfið verði stór hluti af lífi sínu um ókomin ár.

„Já, ég sé alveg fyrir mér að ég muni stunda þetta alveg þar til ég fer í gröfina. Þetta er þannig sport að maður getur spilað það svo lengi sem maður getur gengið.“

Þótt golfið skipi sífellt stærri sess í lífi hans er Gunnar þó hvergi nærri hættur í bardagaíþróttunum.

„Já, ég er enn á fullu. Ég held mér við, æfi af krafti og þjálfa hjá Mjölni þess á milli. Ég stefni á að keppa í október eða nóvember. Það hefur vissulega aðeins hægst á þessu, en ég á nóg eftir. Hversu marga bardaga veit ég ekki, en ég er ekki tilbúinn að hætta strax.“

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅